Rússar hafi beðið Kínverja um aðstoð Viktor Örn Ásgeirsson skrifar 13. mars 2022 20:15 Yang Jiechi hittir Jake Sullivan á fundi í Róm í vikunni. Getty/Tsuno Bandarískir embættismenn segja Rússa hafa beðið Kínverja um hernaðargögn frá upphafi innrásar Rússa inn í Úkraínu.
Sérfræðingar innan Hvíta hússins segja fréttirnar valda áhyggjum enda geti Kínverjar með þessu lagt stein í götu Vesturlanda, sem hafa aðstoðað Úkraínu við að verja land sitt. Bandarísk stjórnvöld hafa ekki gefið nákvæmlega upp hverju Rússar hafi óskað eftir. Það liggur aðeins fyrir að Rússar hafi óskað eftir ótilgreindum hernaðargögnum auk annarrar aðstoðar frá upphafi innrásarinnar. Talsmenn í Hvíta húsinu vildu ekki tjá sig við Financial Times, þegar eftir því var óskað. Þá hafa kínversk stjórnvöld ekki svarað fyrirspurnum miðilsins. Tíðindin koma skömmu fyrir fund Yang Jiechi, sem sér um utanríkismál Kína, og Jake Sullivan, þjóðaröryggisráðgjafa Joe Biden Bandaríkjaforseta, sem fram á að fara í Róm í vikunni. Sullivan hefur varað Kínverja við því að veita Rússum fulltingi. „Við munum tryggja að hvorki Kínverjar, né aðrir, muni bæta Rússum skaðann sem af hefur hlotist vegna innrásarinnar. Ég mun ekki fara sérstaklega út í það sem fram hefur komið í viðræðunum en við höfum átt í samskiptum við kínversk stjórnvöld og munum halda þeim áfram,“ sagði Sullivan við NBC fyrr í dag.
Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Bandaríkin Kína Mest lesið „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Innlent María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Innlent Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Innlent Bandaríkjamenn vilji að stríðinu verði lokið í júní Erlent Berglind rétt marði Þórhall Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjamenn vilji að stríðinu verði lokið í júní Birtu ekki baulið Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Höfnuðu kröfum Bandaríkjamanna Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Neytandi njósnakláms varð fórnarlamb Tugir látnir eftir sprengjuárás í Islamabad Flúði fílahjörð í kjaftinn á krókódíl Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Hik komið á lýtalækna í kjölfar bótadóms vegna kynleiðréttingar Rússar í vandræðum með netið í Úkraínu Umferðin í klessu vegna mikillar snjókomu í Danmörku Hátt settur leyniþjónustumaður skotinn og særður í Moskvu Fór í flugtak af akbraut og hafnaði úti á grasi Bandaríkjamenn og Rússar taka upp formleg samskipti á ný Hvetur til allsherjarverkfalls ef Trump reynir að stela þingkosningunum Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Segir 55 þúsund hermenn fallna en margra sé saknað Vara við uppgangi Íslamska ríkisins Sjónvarpskona biður mannræningja um sönnun þess að móðir hennar lifi enn Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Vildi ekki hitta miðvinstriþingmenn í heimsókn til Washington Sendi Trump tóninn vegna Taívan Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Segir brýnt að semja um áframhaldandi fækkun kjarnavopna Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Segist sjá eftir hverri mínútu með Epstein Skammaði fréttakonu fyrir að brosa ekki Sjá meira