Enn nokkrar vikur í Jóhann Berg | Brasilíumennirnir hjá Man Utd með veiruna Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 7. febrúar 2022 21:31 Jóhann Berg Guðmundsson er ekki leikfær. Daniel Chesterton/Getty Images Jóhann Berg Guðmundsson verður enn fjarri góðu gamni er Burnley mætir Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu annað kvöld. Sömu sögu er að segja af þeim Alex Telles og Fred en báðir nældu sér í kórónuveiruna á dögunum.
Staðfest var fyrr í þessum mánuði að íslenski landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson væri með botnlangabólgu. Nú hefur Sean Dyche, þjálfari Jóhanns Bergs hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Burnley, staðfest að vængmaðurinn verði frá í nokkrar vikur til viðbótar. „Jóhann er að jafna sig hratt og örugglega eftir botnlangabólguna en það eru enn nokkrar vikur í að hann verði fullfrískur,“ sagði Dyche á blaðamannafundi í dag. Burnley má ekki við því að vera án lykilmanna á borð við Jóhanns Bergs en liðið situr sem stendur á botni ensku úrvalsdeildarinnar. Lærisveinar Dyche taka á móti Manchester United á Turf Moor annað kvöld en gestirnir verða einnig án nokkurra leikmanna. Brasilíumennirnir Alex Telles og Fred fengu báðir í kórónuveiruna er þeir voru í landsliðsverkefni nýverið. Hvorugur verður því leikfær er flautað verður til leiks annað kvöld. Fred og Telles eru með Covid-19.Alex Livesey/Getty Images Burnley er eins og áður sagði á botni deildarinnar með 13 stig, þremur stigum frá öruggu sæti. Lið Jóhanns Bergs á þó tvo leiki til góða á liðin fyrir ofan sig í töflunni. Man Utd er í 4. sæti með 38 stig.
Fótbolti Enski boltinn Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Sagði bíl Red Bull vera algjörlega óökuhæfan Formúla 1 Þrenna á föstudagskvöldi og háskólagráða á laugardegi Íslenski boltinn Englendingar Evrópumeistarar eftir framlengdan leik Fótbolti Stelpurnar okkar mættar í paradísina Fótbolti Stelpurnar stungu sér til sunds í vatninu Fótbolti Lenti ofan á öðrum bíl í Formúlu 2 Formúla 1 Útskrifuð af sjúkrahúsinu og gæti verið með á EM Fótbolti Chelsea áfram eftir tveggja klukkutíma töf og framlengingu Fótbolti Einhenta undrið ekki í NBA Körfubolti Fyrstu peningaverðlaunin á ferlinum Sport Fleiri fréttir Leikmaðurinn sem Liverpool ætlar að selja í sumar valinn bestur á EM Forest var búið að kaupa landsliðsmann en hann vildi ekki koma Leikmenn í enska þurfa nú að fara í viðtal þegar þeir koma af velli Brentford hafnaði tilboði Manchester United Liverpool semur við fyrrum liðsfélaga Stefáns Teits Heldur ekki áfram með Leicester Kerkez orðinn leikmaður Liverpool Stefán Teitur og félagar auglýsa Tik Tok stjörnur Liverpool strákurinn hetjan þegar Englendingar fóru í úrslitaleikinn Lallana leggur skóna á hilluna Guardiola sýndi takta á ströndinni með leikmönnum sínum Þurfa að færa leik í ensku úrvalsdeildinni vegna krikketmóts Eigandi Jets í NFL kaupir stóran hlut í Crystal Palace Varð fyrir vonbrigðum með samningstilboð Liverpool Foreldrar Wirtz fá 1,4 milljarða vegna kaupa Liverpool Reiður sjálfum sér: „Ótrúlega heimskuleg mistök“ Tveir frá Arsenal og Bournemouth tilnefndir með nýjustu stjörnu Chelsea Samkomulag um kaupverð Kerkez í höfn Á förum frá Arsenal Erfiðasta byrjunin er hjá Arsenal og Man. United Liverpool gæti misst Mo Salah í sex leiki Bernardo Silva nýr fyrirliði Manchester City Liverpool byrjar titilvörnina á móti Bournemouth „Ég vil líka skora mörk“ Kæra Coote vegna ummæla sinna um Jürgen Klopp Spilaði í fyrsta skiptið eftir bílslysið Man. United sagt í viðræðum við Ekitike sem var líka orðaður við Liverpool „Ég vil drepa Manchester United“ Baulað stanslaust á Carlos Tevez í góðgerðaleik á Old Trafford Hafa ekki efni á að borga „Man United skattinn“ Sjá meira