Eru einum metra frá drengnum en ná ekki til hans Árni Sæberg skrifar 5. febrúar 2022 16:10 Umfangsmiklar björgunaraðgerðir eru í gangi í Marokkó. AP Photo/Mosa'ab Elshamy Viðbragðsaðilar hafa unnið sleitulaust að því að grafa sig að ungum dreng sem féll ofan í brunn fyrir fjórum dögum. Þeir segjast nú hafa grafið göng sem eru einum metra frá drengnum en að ekki sé hægt að komast að honum vegna hættu á skriðufalli.
Björgunarsveitir í Marokkó eru að nálgast fimm ára dreng sem hefur setið fastur í brunni í fjóra daga. Marokkóska þjóðin hefur fylgst náið með björgun drengsins sem heitir Rayan og féll í brunninn á þriðjudaginn. Brunnurinn er 32 metra djúpur en hann er það þröngur að ekki er hægt að síga ofan í hann og sækja barnið. Myndavél var slakað niður í brunninn í fyrradag og staðfest að Rayan hafði lifað fallið af og er einnig búið að senda mat og súrefni til hans. Yfirmaður björgunaraðgerða segir þó að óvíst sé hvort Rayan sé lífs eða liðinn. „Það er ómögulegt að kanna líðan barnsins að svo stöddu, en við biðjum til guðs að það sé á lífi,“ segir Abdelhadi Tamrani, í samtali við staðarmiðil. Nú er svo komið að björgunarmenn hafa grafið meðfram brunninum og útbúið göng sem ná nánast til drengsins, einungis einn metra vantar upp á. Óttast er að jarðvegur gefi undan ef grafið verður beint að drengnum og jarðskriða fari af stað. Gerist það þarf ekki að spyrja að leikslokum.
Marokkó Mest lesið Sigríður Björk segir af sér Innlent Ekki lengur vonlaust tilfelli sem enginn hefur trú á Innlent Heldur fullum launum Innlent Ósammála lækni og greiðir fyrir aðgerðina sjálfur Innlent Öll gögn á ensku annars ógildist krafan Innlent Flestum þykir Guðrún og Sigmundur hafa staðið sig illa Innlent Trump náðar Giuliani og aðra tengda kosningasamsærinu í Georgíu Erlent Rússar nýta samsæriskenningar til að réttlæta innrásina í Úkraínu Innlent Sögð ætla að leita á náðir Trumps Erlent Frumvarp um fjármögnun alríkisins samþykkt í öldungadeildinni Erlent Fleiri fréttir Sögð ætla að leita á náðir Trumps Skaut hreingerningakonu sem fór húsavillt Mótmæli gegn loftmengun í Nýju-Delí: „Ég sakna þess að anda“ Trump náðar Giuliani og aðra tengda kosningasamsærinu í Georgíu Frumvarp um fjármögnun alríkisins samþykkt í öldungadeildinni Flugvallarþorp gæti öðlast framhaldslíf Forstöðumaður BBC segir af sér vegna misvísandi umfjöllunar Saka Rússa um að ógna kjarnorkuöryggi í Evrópu Bretlandsher aðstoðar Belga vegna drónaflugs Nærri milljón rýmir vegna ofurfellibyls Þrír látnir í risaöldum á Tenerife Gestir Bylgjunnar fá að synda undir þessu þaki Aflýsa yfir þúsund flugferðum Sex drepnir í árásum á blokkir og orkuinnviði Haldið föngnum neðanjarðar án sólarljóss mánuðum saman Bretar vilja fara „dönsku leiðina“ í innflytjendamálum Einn uppgötvenda byggingar DNA látinn Útbjuggu heimagerðar sprengjur fyrir árásir á húsnæði flóttamanna Trump veitir Ungverjum undanþágu Skoðar að undanþiggja Ungverja viðskiptaþvingunum á Rússa Neita fregnum um að Lavrov hafi verið settur af Dæmd í fangelsi fyrir áreitið Guðmundur dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morð í Svíþjóð Njósnað um konuna sem ásakaði Khan um kynferðisbrot Gefa grænt ljós á kröfur um skráningu líffræðilegs kyns í vegabréfum Rússar nærri stærstu landvinningunum í rúm tvö ár Lykilorð Louvre einfaldlega Louvre „Samlokumaðurinn“ sýknaður Féll í yfirlið í skrifstofu Trumps Segjast hafa fundið vopn frá Hamas fyrir hryðjuverk í Evrópu Sjá meira