Tryggingafélagið Vörður og Stofnfélagar Sjóvá almennt með lægsta verðið Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 20. janúar 2022 10:30 Tryggingafélagið Vörður var almennt með lægsta tilboðið í tryggingapakka. Vísir/Vilhelm Tryggingafélagið Vörður var með lægsta tilboð í tryggingar í fimm tilfellum af sex samkvæmt nýrri verðkönnun Verðlagseftirlits ASÍ. Samkvæmt könnuninni var minni verðmunur á tilboðum tryggingafélagana innihéldu þau margar ólíkar tryggingar.
Þetta kemur fram í tilkynningu ASÍ. Þar kemur þó fram að endurgreiðslur sem félagar í Stofni, vildarþjónustu Sjóvá, fengju hafi ekki verið tekin með í samanburði á tilboðunum. Félagsmenn í Stofni fái endurgreiðslu af tilteknum trygginum séu þeir tjónlausir í lok greiðslutímabils. Væri endurgreiðslan tekin með í reikningin væru tilboð Sjóvár lægri en tilboð Varðar í þremur tilfellum af fjórum. Samkvæmt tilkynningu ASÍ leituðu fjórir einstaklingar eftir tilboðum í tryggingapakka hjá tryggingafélögunum fjórum þar sem leitað var eftir tilboðum í sambærilegar tryggingar og viðkomandi var þegar með. Þá óskuðu tveir einstaklingar eftir tilboðum í bílatryggingar eingöngu. Einstaklingarnir fjórir, allir í viðskiptum hjá sitt hvoru tryggingafélaginu, voru fengnir til að óska eftir tilboði í sínar tryggingar hjá öðrum tryggingafélögum. Fólkið var á öllum alddri en þó öll komin yfir þrítugt. Upphæð tilboðanna var á bilinu 300 til 500 þúsund krónur en þau tilboð sem innihéldu fleiri tryggingar voru almennt hærri í verði. Ökutækjatryggingar voru alltaf dýrastar, þar á eftir húseigendatryggingar, brunatryggingar og fjölskyldu- og heimilistryggingar. Vörður var með lægsta tilboð í alla stærri tryggingapakka sem innihéldu margar tryggingar. Tm og VÍS voru með hæstu tilboðin í tveimur tilfellum hvort um sig. Tilboð frá Sjóvá voru næst lægst í þremur tilfellum af fjórum. Mest var 37% munur, eða 88.904 króna, á hæsta og lægsta tilboði tryggingafélaganna í trygginapakka einstaklings sem innihélt meðal annars bílatryggingu, fjölskyldu- og heimilistryggingu og húseigendatryggingu. Þá var Vörður með lægsta tilboðið en TM með það hæsta. 51 prósenta verðmunur á tilboðum um bílatryggingu Tveir einstaklingar, sem hvorugur hefur átt bíl, fengu tilboð í ökutækjatryggingar, með bílrúðu- og kaskótryggingu, hjá tryggingafélögunum fjórum. Annar var 20 ára og fékk tilboð fyrir smábíl, 2017 árgerð. Hinn var 30 ára og fékk tilboð í sömu tryggingar fyrir 2014 árgerð af smábíl. Meiri verðmunur var á tilboðunum sem yngri einstaklingurinn fékk, 51%, eða 126.545 króna, munur á hæsta og lægsta tilboði tryggingafélaganna í lögbundnar ökutækjatryggingar auk bílrúðu- og kaskótryggingar, þar sem VÍS var með lægsta tilboðið en TM með hæsta tilboðið. Töluvert minni munur, 8% eða 14.696 krónu, munur var á þeim tilboðum sem eldri einstaklingurinn fékk. Þar var Sjóvá með hæsta tilboðið en Vörður það lægsta. Fram kemur í tilkynningu ASÍ að einhver munur geti verið á tryggingum milli tryggingafélaga vegna ólíkra skilmála og mun á tryggingajárhæðum, sem voru þó stilltar af svo þær væru sem næst því að vera eins. Fram kemur í tilkynningunni að verð á tryggingum hafi hækkað umfram hækkanir á vísitölu neysluverðs á síðustu tveimur árum þrátt fyrir mikinn hagnað tryggingafélaganna og háar arðgreiðslur. Á einu ári, frá desember 2020 til desember 2021, hafi tryggingar hækkað um 7,4% og bílatryggingar um 8,3% samanborið við 5,1% hækkun vísitölu neysluverðs. Greiðsludreifing geti verið kostnaðarsöm ASÍ kannaði jafnframt hvert álag tryggingafélaganna væri við greiðsludreifingu, en að mati ASÍ má gera ráð fyrir að þar sem tryggingar vegi þungt í útgjöldum heimila megi áætla að mikill fjöldi tryggingataka kjósi að dreifa greiðslum yfir lengra tímabil, þar sem tryggingapakki geti hlaupið á hundruðum þúsunda á ársgrundvelli. Misjafnt sé hvernig greiðsludreifingu tryggingafélaganna sé háttað en ljóst sé að greiðsludreifing hjá þeim geti verið kostnaðarsöm. Vaxtakostnaður við tólf mánaða greiðsludreifingu á 300 þúsund króna tryggingapakka með 7% vöxtum nemi til að mynda 9.625 krónum á ári en 5.679 séu vextirnir 4,13%.
Neytendur Fjármál heimilisins Tryggingar Sjóvá Mest lesið „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Viðskipti erlent Gjaldþrotin námu 1,2 milljörðum króna Viðskipti innlent Framkvæmdastjóri í góðri æfingu með brandara og hrekki Atvinnulíf Húsið selt á 78 milljónir og Jakub þarf að reiða fram milljón Viðskipti innlent „Þetta eru mjög mikil vonbrigði fyrir okkur“ Viðskipti innlent Tekjur Haga jukust á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Stýrivextir líklegast ekki lækkaðir aftur á þessu ári Viðskipti innlent Að sleikja narsisstann upp í vinnunni Atvinnulíf Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum Viðskipti erlent Lánardrottnar slá af milljarð af vöxtum á ári Viðskipti innlent Fleiri fréttir Opinn fundur HMS um endurmat brunabótamats Kalla inn geislavirka límmiða Verðlagssæti Íslands enn eitt árið komi ekki á óvart Konur geta tryggt sig á meðgöngu í fyrsta sinn Rukkaðar fyrir sætin: Blöskrar græðgi vertsins, sem segir gjaldið sjálfsagt Nóa-nammið hækkar í stórum skrefum Rækja fannst í skinkusalati „Það er svo mikið rugl í gangi“ Húsgagnahöllin sektuð fyrir ósanngjarnar auglýsingar Fleiri bílastæðafyrirtæki til skoðunar hjá Neytendastofu Bílastæðafyrirtæki fá á baukinn Tókst ekki að sýna fram á galla og situr uppi með körfuboltaskóna Gera fjölmargar breytingar á kílómetragjaldinu Tveggja ára skjár fæst ekki bættur vegna „dauðs depils“ Björn Berg svarar lesendum: Eyðir alltaf neyðarsjóðnum í vitleysu Sektaðar fyrir að trassa með verðmerkingar á Selfossi ESB skammar Shein: Falskir afslættir og villandi upplýsingar Sorpa í Hafnarfirði opnar framvegis klukkan níu um helgar Landsbankinn og Arion lækka vexti „Sporttöppum“ aftur komið fyrir Sagði eldri menn vísvitandi borna röngum sökum en situr uppi með Svarta-Pétur Strætó hættir að taka á móti reiðufé í vögnum 1. júní Verð á innlendri dagvöru hækkar hraðar en verð á erlendri Varar við framtíðarreikningum í nafni barnsins Minnkuðu lúxuspinna en ekki eldflaugina Hefði fengið rúmum tíu þúsundkalli meira í vasann í bankaútibúi „Þetta eru bara krakkar sem eru í þessu fyrir peningana“ Innkalla kjúkling vegna gruns um salmonellu Sjá meira