Norðaustanátt og éljagangur um norðan- og austanvert landið Atli Ísleifsson skrifar 30. desember 2021 07:08 Frost á landinu verður á bilinu núll til átta stig í dag. Vísir/Tryggvi Páll Veðurstofan gerir ráð fyrir norðaustanátt í dag, en talsvert hægari en í gær. Éljagangur verður um landið norðan- og austanvert, en lengst af léttskýjað sunnan- og vestanlands.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði frost um mest allt land – núll til átta stig en frostlaust syðst. „Á morgun, gamlársdag er útlit fyrir fremur hæga austlæga átt með minniháttar éljum, en áfram léttskýjað sunnan- og vestantil. Vindur fer vaxandi um landið sunnan- og vestanvert um kvöldið og einnig þykknar upp við suðurströndina. Dregur úr frosti en búast má við töluverðri vindkælingu sunnan- og vestantil og vissara að klæða sig vel. Fyrir norðan og austan verður vindur mjög hægur og þar mun frostið ekki bíta eins illilega og þar sem vinds gætir,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákortið fyrir klukkan 15.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag (gamlársdagur): Austan 3-8 m/s, en 10-15 syðst á landinu. Víða þurrt og bjart veður, en stöku él með S- ströndinni. Hiti frá frostmarki syðst, niður í 12 stiga frost í innsveitum fyrir norðan. Á laugardag (nýársdagur): Norðaustan hvassviðri eða stormur. Snjókoma á köflum við SA-ströndina, dálítil él N- og A-lands, en annars þurrt að kalla. Frost 0 til 7 stig, en frostlaust syðst. Á sunnudag: Norðlæg átt, 5-15, hvassast austast. Dálítil él fyrir norðan og austan, en bjartviðri SV-lands. Talsvert frost um land allt. Á mánudag: Norðan 5-13. Él á N- og A-verðu landinu, en bjart með köflum syðra. Áfram fremur kalt í veðri. Á þriðjudag: Vaxandi suðaustanátt og þykknar upp vestantil seinnipartinn, en hægari og þurrt fyrir norðan og austan. minnkandi frost um kvöldið. Á miðvikudag: Útlit fyrir sunnan hvassviðri með rigningu, en suðvestlægari og él seinnipartinn. Lengst af þurrt NA-til.
Veður Mest lesið Óku á yfir 60 og missa ökuréttindin Innlent Hreinsanir hafnar í Íran Erlent Twitter-morðinginn tekinn af lífi Erlent Sagði Sean Combs ekki virða svarið „Nei“ Erlent Stjúpsonur norska krónprinsins grunaður um nauðganir Erlent Ákærð fyrir að frelsissvipta dreng eftir dyraat Innlent Svona verða bílastæðagjöldin hjá Háskóla Íslands Innlent Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Innlent Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Innlent Hætta á að Gjögurtáarviti falli í sjóinn Innlent Fleiri fréttir Búast má við töluverðum dembum Rigning víða í dag Skýjað og væta í flestum landshlutum Áfram hlýjast á Vesturlandi Hlýjast á Vesturlandi Gular viðvaranir í kortunum Hiti gæti náð sautján stigum suðaustantil Bætir í úrkomu í kvöld Rigning eða súld um landið allt Lægðardrag yfir landinu Hiti að sextán stigum Allt að átján stiga hiti fyrir vestan Allt að tuttugu stiga hiti Að átján stigum suðvestanlands Fjögurra daga bongóblíða í vændum Væta víðast hvar og hiti að sautján stigum Rigning og hvassviðri með suðurströndinni Bjart með köflum en blæs úr austri í kvöld Bjart og milt peysuveður Glittir í endurkomu sumarsins Að mestu léttskýjað fyrir sunnan og vestan Áframhaldandi norðan strekkingur Óveðrinu slotar en áfram hætta á skriðuföllum Grjóthrun á Siglufjarðarvegi og skriðufall í Neskaupstað Það versta yfirstaðið en veður áfram leiðinlegt á morgun Vaktin: Ekta sumarhret leikur landann grátt Skriðuhætta geti skapast á ólíklegum stöðum Lýsa yfir óvissustigi vegna veðurs Höfuðborgarsvæðið bætist í hópinn Lægð nálgast sem dýpkar ört Sjá meira