Segir ekki rétt að Ísland tækli sóttkví allt öðruvísi en nágrannarnir Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 19. nóvember 2021 16:26 Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir fer yfir stöðuna hvað varðar sóttkví á Norðurlöndum í pistli sínum í dag. Vísir/Vilhelm Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir gerir rangfærslur um framkvæmd sóttkvíar í nálægum löndum vegna COVID-19 að umtalsefni í pistli sínum á Covid.is í dag. Hann segir Norðurlandaþjóðirnar útfæra sóttkví á ólíkan máta og alls ekki þannig að framkvæmd Íslands sé á skjön við hin Norðurlöndin.
Þórólfur segir hafa orðið var við greinar og fullyrðingar frá ýmsum málsmetandi aðilum í íslensku samfélagi um að framkvæmd sóttkvíar vegna Covid-19 hér á landi sé gjörólík framkvæmd sóttkvíar til dæmis á hinum Norðurlöndunum. Einnig sé látið að því liggja að flestar þjóðir framkvæmi sóttkví á sama máta en að framkvæmdin sé með gjörólíku sniði hér á landi. „Greinilegt er að þeir aðilar sem tjá sig um málefnið hafa annaðhvort ekki aflað sér nægilegra góðra upplýsinga eða skrumskælt þær óafvitandi eða af yfirlögðu ráði,“ segir Þórólfur en lætur þess ekki geta hvar rangfærslurnar hafi fallið. Hann segir hvert Norðurland fyrir sig vera með sínar eigin leiðbeiningar og útfærslur varðandi sóttkví sem séu í veigamiklum atriðum ólíkar. Heilu bekkirnir í sóttkví á Norðurlöndunum Þórólfur segir allar Norðurlandaþjóðirnar skilgreina útsetningu fyrir smiti á sama hátt og skilgreina sóttkví og einangrun á sama máta þó framkvæmdin sé ólík. „Flestar þjóðirnar setja sínar leiðbeiningar undir þeim formerkjum að bólusetning gegn COVID-19 sé útbreidd og faraldurinn sé í lámarki í samfélaginu en því er nú ekki til að dreifa þessa stundina í flestum landanna,“ segir Þórólfur. Ísland er til að mynda orðið dökkrautt á korti Sóttvarnastofnunar Evropu, í fyrsta skipti. „Í mörgum landanna eru börn t.d sett í sóttkví við útsetningu á heimilium en þurfa að undirgangast próf reglulega í vikutíma eftir útsetningu í skólum. Í flestum landanna eru hins vegar heilu bekkirnir settir í hefðbundna sóttkví ef upp koma fleiri en eitt smit í sama bekk.“ Nokkur hinna Norðurlandanna geri greinarmun á þeim sem eru bólusettir og óbólusettir þar sem að óbólusettir þurfi ekki að fara í sóttkví en þurfa að undirgangast PCR próf á á meðan að bólusettir eru lausir við íþyngjandi aðgerðir svo fremi að þeir séu einkennalausir. Reglur um sóttkví endurskoðaðar eftir örvunarskammta Þórólfur minnir á að á Íslandi hafi reglur um sóttkví í skólum verið rýmkaðar verulega undanfarið og einungis þeir settir í sóttkví sem raunverulega hafi verið útsettir fyrir smiti á meðan að aðrir fara í smitgát. „Þeir sem eru í smitgát geta haldið áfram sinni daglegri vinnu en þurfa að fara í próf á fjórða degi. Heilu bekkirnir hafa hins vegar ekki verið settir í sóttkví nema ef upp hafa komið mörg smit og eins ef líkur eru taldar á að smit verði útbreitt,“ segir Þórólfur. Full bólusettir hafi ekki verið undanþegnir sóttkví hér á landi. Sú ákvörðun byggi á gögnum sem aflað hafi verið að smitlíkur séu töluverðar hjá fullbólusettum einstaklingum þó að þær séu um þrefalt minni en hjá óbólusettum. „Ef að í ljós kemur að örvunarskammtur bóluefna dregur umtalsvert meira úr líkum á smiti umfram tvo skammta bóluefna þá verða reglur um sóttkví hér á landi endurskoðaðar.“ Endurskoðun í gangi á Norðurlöndunum Þá nefnir Þórólfur að í reglulegum samræðum hans við starfsfélaga á hinum Norðurlöndunum hafi komið fram að í undirbúningi þar sé endurskoðun á ýmsum þeim leiðbeiningum sem nú gildi í ljósi aukinnar útbreiðslu faraldursins. Danir hafi til dæmis þurft að loka nokkrum skólum vegna aukinnar útbreiðslu. „Smitrakning og beiting sóttkvíar og einangrunar hefur verið þungamiðjan í þeim sóttvarnaráðstöfunum sem við höfum beitt með góðum árangri í baráttunni við COVID-19 til þessa,“ segir Þórólfur. „Í núverandi bylgju hefur erfiðlega gengið að halda daglegum smitum í skefjum með þeim aðferðum sem notaðar hafa verið og ljóst að ef að slakað verður á þessum aðgerðum þá munum við fá aukningu í smittölum sem setja mun spítalakerfið á hliðina jafnframt því að valda miklu álagi á samfélagið í heild sinni, sérstaklega á samfélagslega mikilvæga starfsemi. Við verðum því að nota öll okkar ráð til að koma í veg fyrir að slíkt gerist.“ Nást þurfi samstaða um meginmarkmið Þó að gagnrýnar umræður um þær sóttvarnaráðstafanir sem viðhafðar séu hér á landi séu nauðsynlegar þá þjóni þær ekki tilgangi sínum ef menn fari fram með rangar staðhæfingar og láti líta út sem Ísland sé eftirbátur annarra hvað sóttvarnaráðstafanir varði. „Samanburður við aðra getur verið gagnlegur en nauðsynleg er að sjái líka það sem vel er gert hér á landi. Einnig verður að líta til þess að ráðstafanir í einu landi kunna ekki að virka sem skyldi í öðru.“ Styðjast þurfi við bestu þekkingu og vísindagögn sem völ er á til að komast farsællega út úr Covid-19 faraldrinum. „Einnig verðum við að ná samstöðu um að meginmarkmið aðgerðanna sé að vernda spítalakerfið og að raskanir verði sem minnstar á samfélagslega mikilvægum verkefnum.“
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Heilbrigðismál Mest lesið Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Innlent Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Innlent „Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ Innlent „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Lífið „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Innlent Hafa ekki gefið Landhelgisgæslunni upp staðsetningu Bandero Innlent „Það koma bara færri“ Innlent Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Innlent Réðst að hópi drengja í sundlaug Innlent Sérsveitarmenn um borð í Þór Innlent Fleiri fréttir Fræsa og malbika Reykjanesbraut í kvöld Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Selja mannvirki bæjarins á flugvellinum á tólf milljónir Sérsveitarmenn um borð í Þór „Það koma bara færri“ Einn fluttur á spítala eftir líkamsárás Bandero byrjað að senda Landhelgisgæslunni staðsetningu sína „Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ „Þau tala stundum um að við ælum í gegnum puttana“ „Ætlum rétt að vona að þessi tímalína standist“ Hafa ekki gefið Landhelgisgæslunni upp staðsetningu Bandero Boðar frekari niðurskurð síðar í sumar Gefa ekki upp staðsetningu sína og Hildur boðar frekari niðurskurð Hlaut stunguáverka og var fluttur á sjúkrahús Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Hjólar hringinn fyrir Hringinn: Gengið vel en leiðin norður „mjög mikið pain“ Forsetinn og borgarstjórinn í Sprengisandi Réðst að hópi drengja í sundlaug Matsgerðirnar einar ekki nægar til að sanna akstur undir áhrifum slævandi lyfja Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Skip Watsons komið inn í íslenska efnahagslögsögu Slösuð göngukona flutt með þyrlunni „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Festa lengri opnunartíma lauganna um helgar í sessi Undirbúningur vegna almyrkvans víða á lokametrunum „Fólk sem er á bið á ekki að vera þjónustulaust“ Hrun úr Reynisfjalli: „Ansi mikil bergfylla sem hefur farið þarna niður“ Bíður milli vonar og ótta á meðan fjölskyldan er föst undir hótelrústum Notuðust við dróna við að ná utan um stórfellda líkamsárás Hætta á að námsframboð dragist saman Sjá meira