Enn einn Liverpool-maðurinn meiddist í landsleikjahléinu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. nóvember 2021 15:30 Andy Robertson meiddist aftan í læri í leik Skotlands og Danmerkur á Hampden Park í gær. getty/Jane Barlow Liverpool-menn geta eflaust ekki beðið eftir því að þetta síðasta landsleikjahlé ársins klárist en nokkrir leikmenn liðsins hafa meiðst í því.
Jordan Henderson og Sadio Mané höfðu þegar orðið fyrir meiðslum með sínum landsliðum, Englandi og Senegal, og í gær bættist Andy Robertson á þann lista. Hann fór meiddur af velli þegar Skotland vann Danmörku, 2-0, í lokaleik sínum í undankeppni HM 2022. Robertson virtist meiðast aftan í læri en ekki liggur enn fyrir hversu alvarleg meiðslin eru. Næsti leikur Liverpool er gegn Arsenal á laugardaginn. Robertson og félagar urðu í gær fyrsta liðið til að vinna Dani í undankeppni HM. Skotar eru á leið í umspil þar sem þeir geta tryggt sér sæti á sínu fyrsta heimsmeistaramóti síðan 1998. Ef Robertson verður ekki með gegn Arsenal kemur það væntanlega í hlut Grikkjans Kostas Tsimikas að fylla hans skarð. Hann hefur þegar leikið átta leiki á þessu tímabili.
Enski boltinn HM 2022 í Katar Mest lesið Vildi ekki svara spurningum um afa sinn, Donald Trump Golf Ronaldo svaraði Heimi og sagði hann sniðugan Fótbolti Leiðin á HM: Fjögur þúsund manns hurfu sporlaust Fótbolti Hlakkar til að standa sig betur í föðurhlutverkinu Íslenski boltinn Sigurmark Glódísar olli sögulegu tapi Arsenal Fótbolti Óli Jó segir að Geir hafi rekið hann þrisvar Fótbolti Heimir spurður hvort að enn stafi ógn af Ronaldo Fótbolti Aserbaísjan - Ísland | Strákarnir okkar verða að sækja sigur í Bakú Fótbolti Drap Messi-drauminn í fæðingu: „Ekki raunhæft“ Fótbolti Segir Liverpool „fá ekkert“ út úr því að nota Mo Salah svona Enski boltinn Fleiri fréttir Stefnir Manchester United vegna „kynferðislegs og líkamlegs ofbeldis“ Fantasýn: Bara nítján stigum frá toppnum á Íslandi Segir Liverpool „fá ekkert“ út úr því að nota Mo Salah svona Fyrrum United-maður sakaður um að hrækja á stuðningsmenn Úlfarnir komnir með nýjan þjálfara „Ráðafólk fótboltans verður að hlusta á áhyggjur kvenna“ Yfirmaður dómara segir það rétt að dæma markið af Liverpool Aftur brotist inn til Sterling en núna var hann heima „Menn beita öllum brögðum“ Er framherji Brentford óvænt að banka á landsliðsdyrnar hjá Brasilíu? Nagelsmann um Wirtz: Liðsfélagarnir í Liverpool gætu nú aðeins hjálpað honum Kaldasta fagnið í bransanum orðið að vörumerki Liverpool kvartar í dómarasamtökunum „Algjört bull“ eða „rétt ákvörðun“? Mætti sínu gamla liði í fyrsta sinn og skoraði tvö sjálfsmörk Hjörvar sagði González fá símtal: „Ef það gerist þá verður það frábært“ Van Dijk við Hjörvar: „Hvað er sérfræðingur?“ Rooney og Schmeichel fundu til með Liverpool: „Þetta er slæm ákvörðun“ Fjögur mörk, varið víti og Villa upp í sjöunda sætið Öruggur sigur City Færðu auglýsingaskiltin til að trufla löng innköst Arsenal Sjáðu alla dramatíkina og mörkin í enska í gær Sanngjarn heimasigur Tveir í röð hjá West Ham og þægilegt hjá Everton Dramatík í uppbótartíma Amorim fannst vanta hugrekki til að klára leikinn Stefán Teitur og félagar upp í þriðja sætið Tvö mörk í uppbótartíma í ótrúlegum leik Boro bannar Edwards að stýra liðinu í dag Ósammála Wenger að Wirtz hafi skemmt miðju Liverpool Sjá meira