Lækna-Tómas hundskammar Áslaugu Örnu og Þórdísi Kolbrúnu Jakob Bjarnar skrifar 11. nóvember 2021 13:35 Tómas lýsir yfir neyðarástandi á Landspítala og hundskammar þá ráðamenn sem talað hafa fyrir auknum afléttingum á sóttvarnarráðstöfðunum. Ljóst er að spjótin beinast meðal annars að Þórdísi Kolbrúnu og Áslaugu Örnu, ráðherrum Sjálfstæðisflokksins. vísir/vilhelm „Nær daglega heyrast neyðaróp frá bráðamóttöku spítalans, þar sem ástandið er fyrir löngu orðið algjörlega óboðlegt, bæði fyrir sjúklinga og starfsfólk. Á gjörgæsludeildum spítalans er ástandið ekki síður alvarlegt, og nálgast neyðarástand.“
Svo segir í grein sem Tómas Guðbjartsson yfirlæknir á skurðsviði LSH og prófessor við læknadeild HÍ og birtir á Vísi. Greinin hefur vakið mikla athygli enda skefur læknirinn ekki af því. Hann segir sumar lykildeildir Landspítala séu hægt og sígandi að sökkva í sæ; netið sé komið í skrúfuna. „Báðar gjörgæsludeildir spítalans hafa verið fullar upp í rjáfur svo vikum skiptir, ekki aðeins af Covid-sjúklingum heldur einnig öðrum lífshættulega veikum sjúklingum. Af þessum sökum hefur ekki verið hægt að framkvæma neinar opnar hjartaaðgerðir í rúmlega tvær vikur á einu hjartaskurðdeild landsins. Það er einskær heppni að engir sjúklingar hafa komið brátt inn og þurft á lífsbjargandi aðgerð að halda á þessum tíma.“ Hvernig stendur á lakari stöðu en var fyrir 12 árum? Að sögn Tómasar, sem á stundum er kallaður Lækna-Tómas til aðgreiningar frá öðrum þekktum nöfnum sínum, hafi á sama tíma hlaðist upp biðlisti af alvarlega hjartveikum sjúklingum sem bíða aðgerðar, flestir kransæðahjáveituaðgerðar eða hjartalokuskipta. Um er að ræða sjúklinga sem mega margir afar illa við bið eftir aðgerð. Staðan sé óásættanleg fyrir sjúklinga, aðstandendur og starfsfólk spítalans. Tómas spyr hvernig á því standi að fyrir 12 árum hafi verið 18 gjörgæslupláss á Landspítalanum en aðeins 14 nú? „Á sama tímabili hefur legurýmum á Landspítala fækkað um fjórðung, þrátt fyrir aukinn fjölda aldraðra og gríðarlega aukningu í fjölda erlendra ferðamanna.“ Læknirinn vill meina að leysa megi hluta vandans með bættum launakjörum hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða sérstaklega á gjörgæsludeildum og bráðamóttöku. Þannig sé unnt að fá aftur til starfa fullmenntað starfsfólk sem leitað hefur í önnur störf utan spítalans. Nýlegar eingreiðslur til starfsmanna sem klæðast Covid-hlífðarbúningi við störf sín dugi engan veginn til þó ágætar væru fyrir sinn hatt. Stöku ráðherrar sem vilja afnema takmarkanir Kyrrstaðan sé óásættanleg og ríkisstjórnarviðræður í hægagangi og kosningar í Norðvesturkjördæmi í uppnámi bæti ekki úr skák. Tómas segir óljóst hver verði næsti heilbrigðisráðherra og forstjórinn sé hættur. Þá beinir hann spjótum sínum að ráðamönnum og ljóst að þar eru ekki síst ráðherrar Sjálfstæðisflokksins, þær Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir sem mega sitja undir skömmum en þær hafa báðar, einkum Áslaug, talað fyrir því að nú sé nóg komið með kvaðir sem fylgja sóttvörnum: „Á sama tíma og þessi alvarlega staða er uppi, þá hrópa stöku ráðherrar og alþingismenn á torgum hversu brýnt það sé að afnema allar takmarkanir – sem fyrir okkur sem stöndum vaktina á gólfinu á Landspítala er eins og að sparka í liggjandi mann, mann sem er blæðandi,“ segir Tómas og dregur ekki af sér við að lýsa stöðunni eins og hún horfir við honum.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Samkomubann á Íslandi Heilbrigðismál Landspítalinn Alþingi Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Mest lesið Byrjað að daðra við rasíska samsæriskenningu Innlent Helgi Pétursson er látinn Innlent Þorleifur Kamban er látinn Innlent Svona stór er nýja moskítóflugan í samanburði Innlent Vitinn á Gjögurtá fallinn í sjó fram Innlent Þrír látnir eftir að rútu var ekið á biðskýli Erlent Umdeildur skólastjóri í leyfi á meðan úttekt er gerð Innlent „Ég er sá sem getur fellt hann“ Erlent Fengu nóg og tóku málin í sínar eigin hendur Innlent Kom ekki til greina hjá starfshópi en nú líkleg niðurstaða Innlent Fleiri fréttir Auka sýnileika milli rýma á leikskólum „Algjört vandræðamál og sorglegt“ Þau eru nýir talsmenn fatlaðs fólks á þingi Herja á umsækjendur um alþjóðlega vernd Hælisleitendur og börn í auknum mæli notuð sem burðardýr Sameining geti aukið aðdráttarafl fyrir nýja íbúa Arnfríður og Víðir Smári tímabundið í Landsrétt Eldur í Sorpu á Granda Keyrði aftan á strætisvagn Vegagerðin býður út for- og verkhönnun Fljótaganga Safna undirskriftum til að styðja Fjarðarheiðargöng Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur í Garðabæ Vitinn á Gjögurtá fallinn í sjó fram Kom ekki til greina hjá starfshópi en nú líkleg niðurstaða Sjö sækja um tvær lausar stöður Minni hagvöxtur og hjólhýsin mögulega í Skerjafjörðinn Ætla að flytja starfsemi Vogs Tvöfalt fleiri skipulagðir brotahópar en fyrir tíu árum Klóraði sig til blóðs meðan hann svaf Skortir lækna í Breiðholti Staðfesti tveggja ára dóm vegna nauðgunar í jólateiti fyrir austan Fleiri sem ekki verja neinum tíma í lestur Byrjað að daðra við rasíska samsæriskenningu Helgi Pétursson er látinn Stolinn köttur, nágrannaerjur og ungmenni til vandræða Lýsa víðtæku ofbeldi gagnvart eldra fólki og kalla eftir vakningu Vill byrja á næstu göngum árið 2027 en segir ekki hvar Fengu nóg og tóku málin í sínar eigin hendur Bregðast ekki við bílastæðavanda við skíðasvæði í Reykjavík Héldu styrktartónleika fyrir kristna flóttamenn Sjá meira