HK sótti stig gegn Íslandsmeisturunum | Stjarnan hafði betur úti í Eyjum Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 30. október 2021 17:00 HK sótti óvænt stig norður í dag. vísir/Bára HK-ingar sóttu gott stig norður á Akureyri er liðið gerði jafntefli við Íslandsmeistara KA/Þórs í Olís-deild kvenna í dag, 26-26. Þá unnu Stjörnukonur góðan tveggja marka útisigur gegn ÍBV, 26-24. Mikið jafnræði var með liðunum fyrir norðan og ekkert virtist geta skilið þau að. HK-ingar fóru þó með eins marks forystu inn í hálfleikinn, 13-12. Það sama var uppi á teningnum í seinni hálfleik. Liðin skiptust á að skora og erfitt reyndist að skilja liðin að. Liðin héldust raunar í hendur allt til leiksloka og niðurstaðan varð 26-26 jafntefli. KA/Þór er nú með fimm stig eftir fjóra leiki, tveim stigum meira en HK sem hefur þó leikið einum leik meira. Stjarnan náði þriggja marka forystu gegn ÍBV um miðjan fyrri hálfleik eftir jafna byrjun. Liðið hélt forystunni út hálfleikinn og þegar gengið var til búningsherbergja var staðan 15-12. Eftir sterka byrjun Eyjakvenna í seinni hálfleik tóku Stjörnukonur völdin á ný og náðu mest fimm marka forskoti í stöðunni 23-18. Eyjakonur löguðu stöðuna aðeins fyrir leikslok, en niðurstaðan varð tveggja marka sigur Stjörnunnar, 26-24.
Mikið jafnræði var með liðunum fyrir norðan og ekkert virtist geta skilið þau að. HK-ingar fóru þó með eins marks forystu inn í hálfleikinn, 13-12. Það sama var uppi á teningnum í seinni hálfleik. Liðin skiptust á að skora og erfitt reyndist að skilja liðin að. Liðin héldust raunar í hendur allt til leiksloka og niðurstaðan varð 26-26 jafntefli. KA/Þór er nú með fimm stig eftir fjóra leiki, tveim stigum meira en HK sem hefur þó leikið einum leik meira. Stjarnan náði þriggja marka forystu gegn ÍBV um miðjan fyrri hálfleik eftir jafna byrjun. Liðið hélt forystunni út hálfleikinn og þegar gengið var til búningsherbergja var staðan 15-12. Eftir sterka byrjun Eyjakvenna í seinni hálfleik tóku Stjörnukonur völdin á ný og náðu mest fimm marka forskoti í stöðunni 23-18. Eyjakonur löguðu stöðuna aðeins fyrir leikslok, en niðurstaðan varð tveggja marka sigur Stjörnunnar, 26-24. Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Handbolti Olís-deild kvenna HK Þór Akureyri KA Stjarnan ÍBV Íslenski handboltinn Mest lesið Evrópa leiðir baráttuna um Ryder bikarinn Sport NFL leikir á Maracanã næstu fimm árin Sport Víkingur vann bikarinn úr aukaspyrnum Fótbolti Einföld aðgerð varð að fimm mánaða ferli Sport Kane skoraði hundrað mörk á methraða Fótbolti Stjarnan sneri leiknum og lagði FH Handbolti KA sótti sigur gegn stigalausu liði HK Handbolti Trump missir ekki trúna: „Við munum klára þetta“ Golf Ekitike var ekki sektaður: „Það má gera mistök hjá þessu félagi“ Enski boltinn Sigurvegari Stokkhólms-maraþonsins látin aðeins þrítug Sport Fleiri fréttir KA sótti sigur gegn stigalausu liði HK Stjarnan sneri leiknum og lagði FH „Þetta var bara draumi líkast“ „Frábært að sjá Darra spila handbolta aftur“ „Munurinn á liðunum var einfaldlega markvarslan“ Uppgjörið: Fram - Haukar 27-32 | Haukar sigldu sigrinum í höfn í Úlfarsárdal Flautumark í Breiðholti Ómar Ingi markahæstur í sigri Magdeburgar Kaflaskipt í sigri Valsmanna Glimrandi byrjun Gummersbach heldur áfram Janus markahæstur í frábærum sigri á PSG Ásdís átti stórleik í stórsigri Vals KA/Þór með fullt hús stiga Bjarki skoraði fjögur mörk í mjög kaflaskiptum leik Mættur heim í Hauka eftir erfið ár í Frakklandi Segja leikmenn hafa kvartað undan Guðmundi Spenntur að spila aftur í Vestmannaeyjum Kveðst skilja vel hvers vegna Guðmundur var rekinn Kári Kristján semur við Þór Akureyri Markahæstur í vetur og nálgast ellefu hundruð mörkin í þýsku deildinni Guðmundur rekinn frá Fredericia Stórleikur Íslendinganna dugði ekki til sigurs Sextán marka tap gegn Dönum staðreynd Selfoss fagnaði fyrsta sigrinum gegn Fram Stjarnan vann háspennuleik gegn HK Valur sótti nauman sigur norður Tímabilið byrjar vel hjá lærisveinum Guðjóns Vals „Reyndum allt en ekkert gekk upp“ Uppgjörið: FH - ÍBV 36-30 | Sigur FH var aldrei í hættu gegn flötu liði ÍBV Ómar markahæstur og Gísli skoraði sigurmarkið Sjá meira