Fjögurra ára neyðarástandi loks aflétt í Egyptalandi Atli Ísleifsson skrifar 26. október 2021 09:26 Abd al-Fattah al-Sisi, forseti Egyptalands, segir Egyptaland nú orðið vin öryggis og stöðugleika í heimshlutanum þökk sé hins stórkostlega fólks í landinu og trúrra manna. EPA Stjórnvöld í Egyptalandi hafa loks aflétt því neyðarástandi sem hefur verið í gildi í landinu í fjögur ár. Neyðarástandi var lýst yfir eftir hryðjuverkaárásir á tvær koptískar kirkjur í landinu árið 2017.
Abd al-Fattah al-Sisi, forseti Egyptalands, greindi frá þessu í gær. „Egyptaland hefur orðið vin öryggis og stöðugleika í heimshlutanum þökk sé hins stórkostlega fólks og trúrra manna. Ég hef því ákveðið að framlengja ekki því neyðarástandi sem ríkir í landinu,“ sagði al-Sisi á landinu. Árásirnar á koptísku kirkjurnar voru gerðar í apríl 2017, en alls fórust 45 manns í árásunum. Koptíska kirkjan er stærsta kristna kirkjan þar í landi og voru það hryðjuverkasamtökin Ríki íslams sem lýsti yfir ábyrgð á árásunum. Neyðarástandið hefur meðal annars falið í sér auknar heimildir til lögreglu og skerðingar á funda- og tjáningarfrelsi Egypta. Egyptar hafa um árabil átt í stríði við íslamista með tengsl við Ríki íslams, sér í lagi á norðurhluta Sinaiskaga og svo í eyðimörkinni í Líbíu. Mannréttindasamtök hafa mörg sagt egypsk stjórnvöld hafa nýtt sér neyðarástandið í landinu til að þagga niður í stjórnarandstæðingum.
Egyptaland Mest lesið Sigríður Björk segir af sér Innlent Heldur fullum launum Innlent Ekki lengur vonlaust tilfelli sem enginn hefur trú á Innlent Strætisvagni ekið á leikskólastarfsmann og barn Innlent Ósammála lækni og greiðir fyrir aðgerðina sjálfur Innlent Farsæll ferill eða í meira lagi umdeildur? Innlent Demókratar reiðir hver öðrum en aðallega reiðir Schumer Erlent Arndís Soffía tekur við af Grími Innlent Dómsmálaráðherra verði að segja satt og rétt frá Innlent Sögð ætla að leita á náðir Trumps Erlent Fleiri fréttir „Við viljum auðvitað fá fólkið okkar aftur til Úkraínu“ Reynt sé að grafa undan BBC sem þó hafi gert mistök Demókratar reiðir hver öðrum en aðallega reiðir Schumer Ætla ekki að endurskoða rétt samkynhneigðra til að giftast Sarkozy laus úr fangelsi Lagði til að forsætisráðherrann yrði afhöfðaður Sögð ætla að leita á náðir Trumps Skaut hreingerningakonu sem fór húsavillt Mótmæli gegn loftmengun í Nýju-Delí: „Ég sakna þess að anda“ Trump náðar Giuliani og aðra tengda kosningasamsærinu í Georgíu Frumvarp um fjármögnun alríkisins samþykkt í öldungadeildinni Flugvallarþorp gæti öðlast framhaldslíf Forstöðumaður BBC segir af sér vegna misvísandi umfjöllunar Saka Rússa um að ógna kjarnorkuöryggi í Evrópu Bretlandsher aðstoðar Belga vegna drónaflugs Nærri milljón rýmir vegna ofurfellibyls Þrír látnir í risaöldum á Tenerife Gestir Bylgjunnar fá að synda undir þessu þaki Aflýsa yfir þúsund flugferðum Sex drepnir í árásum á blokkir og orkuinnviði Haldið föngnum neðanjarðar án sólarljóss mánuðum saman Bretar vilja fara „dönsku leiðina“ í innflytjendamálum Einn uppgötvenda byggingar DNA látinn Útbjuggu heimagerðar sprengjur fyrir árásir á húsnæði flóttamanna Trump veitir Ungverjum undanþágu Skoðar að undanþiggja Ungverja viðskiptaþvingunum á Rússa Neita fregnum um að Lavrov hafi verið settur af Dæmd í fangelsi fyrir áreitið Guðmundur dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morð í Svíþjóð Njósnað um konuna sem ásakaði Khan um kynferðisbrot Sjá meira