Rigning í öllum landshlutum og smá vindstrengur Atli Ísleifsson skrifar 12. október 2021 06:47 Nokkuð milt loft fylgir úrkomunni og verður hiti á landinu á bilinu tvö til ellefu stig. Vísir/Vilhelm Skil koma að suðvesturhorni landsins núna í morgunsárið og er byrjað að rigna úr þeim á Reykjanesskaganum. Skilin fara norðaustur yfir landið í dag og því má búast við rigningu í öllum landshlutum, en þó ekki fyrr en seinnipartinn á Norðausturlandi.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að skilunum fylgi smá vindstrengur suðvestantil en annars verði vindur á bilinu fimm til tíu metrar á sekúndu. Nokkuð milt loft fylgi úrkomunni og verði hiti á bilinu tvö til ellefu stig, hlýjast á Suðurlandi. „Seint í nótt og á morgun gengur síðan í norðan 8-15 m/s með skúrum eða slydduél um norðanvert landið og kólnandi veðri en sunnantil verður lítilsháttar væta framan af en birtir til er líður á daginn. Hiti um og yfir frostmarki norðanlands, en 3 til 9 stig syðst.“ Spákortið fyrir klukkan 16.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Norðlæg átt, 5-13 m/s með rigningu eða slyddu en lítilsháttar væta sunnanlands framan af degi. Hiti 1 til 9 stig, mildast syðst. Á fimmtudag: Suðvestan 5-13 m/s og að mestu léttskýjað. Hiti 0 til 6 stig en um eða undir frostmarki á Norður- og Norðausturlandi. Á föstudag: Vestlæg átt og lítilsháttar væta vestanlands en annars skýjað með köflum. Hiti 1 til 7 stig. Á laugardag: Austlæg eða breytileg átt, að mestu skýjað og dálítil væta á víð og dreif, einkun sunnan- og vestanlands. Hiti breytist lítið. Á sunnudag og mánudag: Útlit fyrir ákveðna suðaustanátt með rigningu og mildu veðri.
Veður Mest lesið „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Innlent Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Áfram léttskýjað á Suðvesturhorninu Éljagangur og slabb í kortunum Skil að ganga yfir landið með tilheyrandi úrkomu Ekkert lát á austlægum áttum Allhvass vindur og svalari en síðustu daga Áfram austanátt og kólnar í kvöld Ekkert óvenjulegt við kalt og bjart veður Hvassast við suðurströndina Má búast við skúrum eða éljum Víðast úrkomulítið en skúrir og slydduél austantil Mildri austanátt beint til landsins Áfram hvasst með suðurströndinni Slær áfram í storm á suðurströndinni Djúp lægð veldur stormi syðst á landinu Þurrt og bjart víða um landið Hvasst syðst á landinu Kólnandi veður og víða bjart Ákveðin austanátt á landinu öllu og víða snarpar hviður Víða rigning með köflum og bætir í vind í kvöld Róleg austanátt en hvessir á morgun Víða rigning og kólnar í veðri Minnkandi norðlæg átt en bætir í vind á morgun Þurrt og bjart suðvestantil en snjór og él víða Líkur á smá slyddu og snjókomu syðst Stíf norðvestlæg átt ásamt ofankomu Gæti slegið í storm og hringvegurinn lokaður Óvissustig á vegi milli Kirkjubæjarklausturs og Jökulsárlóns Gular veðurviðvaranir framundan Útlit fyrir hríðarveður á austasta hluta landsins í kvöld Frost og hægur vindur Sjá meira