Segja Hermann líklegastan til að taka við ÍBV Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 24. september 2021 22:00 Hermann hefur stýrt Þrótti Vogum frá árinu 2020. Þróttur Vogum Talið er að Eyjamaðurinn Hermann Hreiðarsson sé líklegastur til að taka við ÍBV en liðið mun leika í Pepsi Max deild karla í fótbolta sumarið 2022. Þetta herma heimildir Fótbolti.net. Hermann hefur stýrt Þrótti Vogum undanfarin misseri. Hann stýrði liðinu upp úr 2. deildinni nýverið en nú virðist sem hann muni ekki stýra liðinu í Lengjudeildinni þar sem hann gæti verið að taka við uppeldisfélagi sínu ÍBV. Hermann stýrði ÍBV sumarið 2013 en þá var hann spilandi þjálfari. Síðan þá hefur Hermann farið til Indlands þar sem hann var aðstoðarþjálfari Kerala Blasters, einnig var hann aðstoðarmaður Sol Campbell hjá Southend United áður en hann tók við Þrótti Vogum í júlí á síðasta ári. Þá er Hermann í dag aðstoðarmaður Davíðs Smára Jónssonar í U-21 árs landsliði karla. Helgi Sigurðsson stýrði ÍBV upp úr Lengjudeildinni í sumar en liðið endaði í 2. sæti eftir erfiða byrjun. Hann hefur ákveðið að halda ekki áfram með liðið og ljóst að Eyjamenn eru í leit að nýjum þjálfara. Sigurvin Ólafsson (aðstoðarþjálfari KR og þjálfari KV), Jón Þór Hauksson (Vestri) og Rúnar Páll Sigmundsson (Fylkir) hafa verið orðaðir við stöðuna en nú virðist sem Hermann sé á leið til Eyja á nýjan leik.
Þetta herma heimildir Fótbolti.net. Hermann hefur stýrt Þrótti Vogum undanfarin misseri. Hann stýrði liðinu upp úr 2. deildinni nýverið en nú virðist sem hann muni ekki stýra liðinu í Lengjudeildinni þar sem hann gæti verið að taka við uppeldisfélagi sínu ÍBV. Hermann stýrði ÍBV sumarið 2013 en þá var hann spilandi þjálfari. Síðan þá hefur Hermann farið til Indlands þar sem hann var aðstoðarþjálfari Kerala Blasters, einnig var hann aðstoðarmaður Sol Campbell hjá Southend United áður en hann tók við Þrótti Vogum í júlí á síðasta ári. Þá er Hermann í dag aðstoðarmaður Davíðs Smára Jónssonar í U-21 árs landsliði karla. Helgi Sigurðsson stýrði ÍBV upp úr Lengjudeildinni í sumar en liðið endaði í 2. sæti eftir erfiða byrjun. Hann hefur ákveðið að halda ekki áfram með liðið og ljóst að Eyjamenn eru í leit að nýjum þjálfara. Sigurvin Ólafsson (aðstoðarþjálfari KR og þjálfari KV), Jón Þór Hauksson (Vestri) og Rúnar Páll Sigmundsson (Fylkir) hafa verið orðaðir við stöðuna en nú virðist sem Hermann sé á leið til Eyja á nýjan leik. Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Fótbolti Íslenski boltinn Pepsi Max-deild karla Lengjudeild karla ÍBV Mest lesið McIlroy glaður að vera laus við pólitíkina í golfi Sport Stólarnir gáfust ekki upp og gengu frá Manchester Körfubolti Sektaður um þrjár milljónir fyrir að kasta flösku í áhorfanda Körfubolti Arnór og Stiven mættust í Íslendingaslag Handbolti Tryggvi fagnaði fjórða Evrópusigrinum í röð Körfubolti Arnar hitti úr öllu og Þorsteinn hamraði á markið Handbolti Stærsta tap tímabilsins beið Fram í Sviss Handbolti Aftur brotist inn til Sterling en núna var hann heima Enski boltinn Arna hélt hreinu og lagði upp sigurmarkið Fótbolti Fram hirti sigur af Haukum eftir æsispennu Handbolti Fleiri fréttir Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Sjá meira