Fór til London í skoðun og aðgerð vegna þrálátra meiðsla Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 15. september 2021 17:46 Arnór Borg í baráttunni við Brynjar Hlöðversson í leik Fylkis og Leikni R. Vísir/Hulda Margrét Arnór Borg Guðjohnsen, leikmaður Fylkis í Pepsi Max deild karla í fótbolta, hefur loks fengið úr því skorið hvað er að hrjá hann. Eftir að hafa verið meira og minna meiddur í nær allt sumar hefur komið í ljós að hann er með nárakviðslit. Frá þessu er greint á vef Fótbolti.net en Arnór Borg var þar í stuttu spjalli. Hann segir að meiðslin hafi verið að plaga hann síðan í apríl og að endurhæfingin ætti að taka um það bil mánuð en skera þurfti upp á bæði hægri og vinstri nára leikmannsins. Hinn tvítugi Arnór Borg – sem fagnar 21. árs afmælinu á morgun – hefur verið meira og minna meiddur síðan í apríl á þessu ári. Lítið hefur verið vitað um meiðslin en nú loks hefur hann fengið rétta meðhöndlun. Það er þó ljóst að hann mun ekki leika meira með Fylki á þessari leiktíð en félagið er í bullandi fallbaráttu. Arnór Borg gekk í raðir Fylkis á síðustu leiktíð og spilaði þá 19 leiki í deild og bikar. Þrátt fyrir meiðslin hefur hann spilað alls 11 leiki í sumar. Samningur hans rennur út í haust en Arnór Borg hefur verið mikið orðaður við Víking í sumar.
Frá þessu er greint á vef Fótbolti.net en Arnór Borg var þar í stuttu spjalli. Hann segir að meiðslin hafi verið að plaga hann síðan í apríl og að endurhæfingin ætti að taka um það bil mánuð en skera þurfti upp á bæði hægri og vinstri nára leikmannsins. Hinn tvítugi Arnór Borg – sem fagnar 21. árs afmælinu á morgun – hefur verið meira og minna meiddur síðan í apríl á þessu ári. Lítið hefur verið vitað um meiðslin en nú loks hefur hann fengið rétta meðhöndlun. Það er þó ljóst að hann mun ekki leika meira með Fylki á þessari leiktíð en félagið er í bullandi fallbaráttu. Arnór Borg gekk í raðir Fylkis á síðustu leiktíð og spilaði þá 19 leiki í deild og bikar. Þrátt fyrir meiðslin hefur hann spilað alls 11 leiki í sumar. Samningur hans rennur út í haust en Arnór Borg hefur verið mikið orðaður við Víking í sumar. Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Fótbolti Pepsi Max-deild karla Íslenski boltinn Fylkir Mest lesið Eygló Fanndal fékk slæmar fréttir: „Hrædd við komandi mánuði“ Sport Ætlaði að hætta að velja Eið Smára í landsliðið eftir fýluferð til Englands Fótbolti Samherji verður einn helsti bakhjarl HSÍ Handbolti Van Dijk við Hjörvar: „Hvað er sérfræðingur?“ Enski boltinn Liverpool kvartar í dómarasamtökunum Enski boltinn „Algjört bull“ eða „rétt ákvörðun“? Enski boltinn Hjörvar sagði González fá símtal: „Ef það gerist þá verður það frábært“ Enski boltinn Vill halda Heimi og írska liðið lélegt Fótbolti Rooney og Schmeichel fundu til með Liverpool: „Þetta er slæm ákvörðun“ Enski boltinn Markvörður með skóflu á lofti í miðjum úrslitaleik Fótbolti Fleiri fréttir Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Sjá meira