Úrslitin ráðast á stórmeistaramótinu í Counter-Strike Sindri Sverrisson skrifar 3. september 2021 17:15 Kristján Einar Kristjánsson verður með Tómas Jóhannsson sér til fulltingis á morgun í beinni útsendingu frá úrslitaleik stórmeistaramótsins í CS:GO. Komið er að úrslitastundu á stórmeistaramótinu í Counter-Strike: Global Offensive. Nýir meistarar verða krýndir í beinni útsendingu á Stöð 2 eSport annað kvöld þar sem mikið verður um dýrðir.
Lið Dusty er ríkjandi stórmeistari og átti ekki í vandræðum með að slá út Rafmos og XY um síðustu helgi á leið sinni í úrslitaleikinn. Dusty tapaði ekki einu korti á leiðinni og virðist illviðráðanlegt. Andstæðingar Dusty eru hins vegar engir nýgræðingar; lið Vallea. Þeir unnu Kórdrengi í 8-liða úrslitum, 16-12 og 16-10, en lentu síðan í hörkuviðureign gegn KR. Eftir að hafa unnið fyrsta leikinn tapaði Vallea í framlengingu í þeim næsta, og var undir í hálfleik í oddaleiknum en vann hann að lokum 16-12 og komst í úrslit. Í liði Vallea eru keppendur sem gerðu garðinn frægan í fyrsta Counter-Strike leiknum og hafa spilað til úrslita reglulega á síðustu fimmtán árum. Andstæðingar þeirra eru flestir rúmum áratug yngri en hafa eins og fyrr segir titil að verja. Útsendingin á morgun hefst klukkan 18 með skemmtilegum sýningarleik og úrslitaleikurinn sjálfur hefst svo klukkan 20.
Rafíþróttir Tengdar fréttir „Bestu liðin, bestu leikmennirnir og mót þar sem allt getur gerst“ Spennan í íslenskum rafíþróttum nær hámarki næstu tvær helgar þegar stórmeistaramótið í Counter Strike: Global Offensive fer fram. Kristján Einar Kristjánsson, annar lýsenda mótsins, lofar harðri keppni og flottum viðburði. 27. ágúst 2021 15:00 Mest lesið Golfgoðsögnin Tiger Woods lenti í bílslysi Golf Nudda Heimi upp úr ummælum hans eftir tapið sára Fótbolti Hræðist ekki framhaldið en er stressaður: „Mesta höggið kom núna“ Fótbolti Neitaði að hefja seinni hálfleik fyrr en stuðningsmenn hlýddu Handbolti Selur húsið sitt til að komast á HM í fótbolta Fótbolti „Tannlæknirinn hefur fengið sinn séns og nú verður hann að fara“ Fótbolti HM-ævintýrið búið hjá Heimi Fótbolti Roy Hodgson snýr óvænt aftur í boltann 78 ára gamall Enski boltinn Átti að taka víti fyrir Heimi en missti meðvitund Fótbolti „Salah gæti spilað í sjö ár í viðbót“ Enski boltinn
„Bestu liðin, bestu leikmennirnir og mót þar sem allt getur gerst“ Spennan í íslenskum rafíþróttum nær hámarki næstu tvær helgar þegar stórmeistaramótið í Counter Strike: Global Offensive fer fram. Kristján Einar Kristjánsson, annar lýsenda mótsins, lofar harðri keppni og flottum viðburði. 27. ágúst 2021 15:00