Þrjú efstu liðin með sigra í Lengjudeild kvenna Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 19. ágúst 2021 20:41 FH rétt marði sigur gegn fallbaráttuliði HK. Vísir/Anton Þrjú efstu lið Lengjudeildar kvenna, KR, FH og Afturelding, unnu öll sína leiki í kvöld. Afturelding vann 3-0 sigur gegn botnliði Augnabliks, KR vann 6-0 stórsigur gegn Víking R. og FH vann 3-2 sigur gegn fallbaráttuliði HK.
Taylor Lynne Bennett fór á kostum í liði Aftureldingar og skoraði öll þrjú mörk liðsins í 3-0 sigri. Afturelding er því enn í öðru sæti með 34 stig. Markaskorunin dreifðist aðins betur í liði KR sem vann 6-0 stórsigur gegn Víkingum, en það voru sex mismunandi markaskorarar. Aideen Hogan Keane og Unnur Elva Traustadóttir sáu til þess að staðan var 2-0 eftir aðeins sex mínútna leik. Kristín Sverrisdóttir og Bergdís Fanney Einarsdóttir breyttu stöðunni svo í 4-0 fyrir hálfleik. Sandra Dögg Bjarnadóttir og Karítas Ingvarsdóttir sáu um markaskorun í seinni hálfleik og niðurstaðan því 6-0 sigur KR, sem er í þriðja sæti Lengjudeildarinnar með 33 stig, tveimur stigum minna en FH. FH lenti í örlitlum vandræðum með fallbaráttulið HK. Magðalena Ólafsdóttir kom HK yfir eftir sex mínútna leik, og þegar rúmlega tuttugu mínútur voru liðnar tvöfaldaði Bryndís Gréta Björgvinsdóttir forystuna. Mörk frá Rannveigu Bjarnadóttir og Sigríði Láru Garðarsdóttir með fjögurra mínútna millibili rétt fyrir hálfleik tryggðu það þó að staðan var jöfn þegar gengið var til búningsherbergja. Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir tryggði FH-ingum svo sigurinn af vítapunktinum á 76. mínútu og lokatölur 3-2. FH heldur því toppsætinu með 35 stig.
Lengjudeild kvenna KR FH HK Afturelding Víkingur Reykjavík Mest lesið Norðmenn rífast um hvort kynferðisafbrotamaður eigi að spila með landsliðinu Fótbolti Tveir áhorfendur létust á mismunandi tímum á sama leikvangi Sport McIlroy glaður að vera laus við pólitíkina í golfi Sport Stólarnir gáfust ekki upp og gengu frá Manchester Körfubolti Yfirmaður dómara segir það rétt að dæma markið af Liverpool Enski boltinn Sektaður um þrjár milljónir fyrir að kasta flösku í áhorfanda Körfubolti Dagskráin í dag: Blikar spila í glænýrri Evrópukeppni Sport Arnór og Stiven mættust í Íslendingaslag Handbolti Tryggvi fagnaði fjórða Evrópusigrinum í röð Körfubolti Aftur brotist inn til Sterling en núna var hann heima Enski boltinn Fleiri fréttir Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Sjá meira