Sigrún Sjöfn síðasta systirin til að yfirgefa Skallagrím Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 18. ágúst 2021 14:30 Sigrún Sjöfn hefur samið við Fjölni. Fjölnir Fjölnir hefur heldur betur styrkt sig fyrir komandi tímabil í efstu deild kvenna í körfubolta. Hin 32 ára gamla Sigrún Sjöfn Ámundadóttir mun leika með liðinu á komandi leiktíð.
Sigrún Sjöfn er ein þriggja systra sem allar hafa spilað körfubolta undanfarin ár. Á síðasta tímabili voru þær allar hluti af liði Skallagríms, ein sem þjálfari og tvær sem leikmenn. Með vistaskiptum Sigrúnar er ljóst að engin af systrunum mun koma að liði Skallagríms í vetur. Guðrún Ósk, eldri systir Sigrúnar, hafði þjálfað lið Skallagríms frá árinu 2019 en sagði starfi sínu lausu fyrr í sumar. Arna Hrönn, yngst af systrunum þremur, samdi nýverið við Pacific Lutheran-háskólann sem staðsettur er í Washington ríki í Bandaríkjunum og mun því leika þar í vetur. Reynsluboltinn Sigrún Sjöfn á að baki 57 leiki fyrir íslenska A-landsliðið ásamt því að hafa spilað sem atvinnumaður í bæði Frakklandi og Svíþjóð. Þá hefur hún verið einn besti íslenski leikmaður efstu deildar undanfarin ár. Sigrún Sjöfn varð tvívegis Íslandsmeistari með KR og þrívegis bikarmeistari. Þá var hún í lykilhlutverki er Skallagrímur vann sinn fyrsta bikarmeistaratitil í sögunni árið 2020. Einnig hefur hún verið sex sinnum valin í úrvalslið efstu deildar kvenna. Á síðustu leiktíð skoraði Sigrún Sjöfn að meðaltali 8,9 stig í leik, tók 5,7 fráköst og gaf 3,4 fráköst. Það er því ljóst að hún mun styrkja lið Fjölnis til muna. Liðið hafnaði í 4. sæti deildarinnar og tapaði svo fyrir verðandi Íslandsmeisturum Vals í undanúrslitum.
Körfubolti Íslenski körfuboltinn Skallagrímur Mest lesið Ákvæði í samningi Andra tengt brotthvarfi föður hans Handbolti Karólína Lea á bólakaf í kalda pottinum Fótbolti Vann hundrað kílómetra hlaup og gaf brjóst á leiðinni Sport Birkir gæti hætt: Fékk spennandi starf en svo fór allt í skrúfuna Fótbolti Þóra um hártogið í Bestu: „Þetta er bara botnhegðun“ Íslenski boltinn Tvö rauð spjöld og slagsmál er Inter komst áfram Fótbolti Slógu saman heimsmetið í bakgarðshlaupum Sport Flagg fer til Dallas Körfubolti Stefán Teitur og félagar auglýsa Tik Tok stjörnur Enski boltinn Neymar hlustaði á hjartað sitt Fótbolti Fleiri fréttir Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Snýr aftur á Álftanes með hunangið Bragi semur við nýliðana Basile áfram á Króknum „Ætluðum ekki að leyfa þeim að fagna titli á okkar heimavelli“ Pacers knúðu fram oddaleik Íslensku stelpurnar unnu silfrið á Norðurlandamótinu Fór frá bróður og Keflavík: „Þarf ekkert litla bróður sinn með sér í liði“ Buss fjölskyldan selur Los Angeles Lakers fyrir metupphæð Hæsta kona heims lék sinn fyrsta landsleik Rúnar Birgir á EuroBasket Dolezaj til liðs við nýliðana Sjá meira