KR áfram á toppnum - loks vann Augnablik Valur Páll Eiríksson skrifar 21. júlí 2021 21:46 KR er á mikilli siglingu. Vísir/Hulda Margrét 11. umferð fór fram í Lengjudeild kvenna í fótbolta í kvöld. Toppliðin þrjú í deildinni unnu öll og þá vann botnlið Augnabliks sinn fyrsta sigur síðan í fyrstu umferð.
KR var með fimm stiga forskot á toppi deildarinnar og hafði unnið átta af síðustu níu leikjum í deildinni. Gott gengi liðsins hélt áfram í kvöld með 4-1 sigri á HK að Meistaravöllum. KR er með 28 stig á toppi deildarinnar en HK er með níu stig í 8. sæti, aðeins stigi frá fallsæti. Eini tapleikur KR í sumar kom gegn Augnabliki í fyrstu umferð en Augnablik hafði ekki unnið leik síðan þá, þar til í kvöld. Liðið vann 4-2 heimasigur á ÍA í Kópavogi og fór með honum af botni deildarinnar. Augnablik er með átta stig í næst neðsta sæti, fyrir ofan botnlið Grindavíkur vegna hagstæðari markatölu. Grindavík tapaði 3-2 fyrir Haukum í Hafnarfirði í kvöld sem sendi liðið á botninn. Haukar fóru með þeim sigri upp í fjórða sæti með 15 stig. Fyrir neðan Hauka eru Víkingur og Grótta með 13 stig í 5.-6. sæti. Bæði lið þurftu að þola slæm töp í kvöld. FH vann Gróttu 4-1 á Seltjarnarnesi og eru Hafnfirðingar með 23 stig í öðru sæti, fimm stigum á eftir toppliði KR. Afturelding er í mikilli baráttu við FH um að komast upp úr deildinni og er aðeins stigi á eftir FH í þriðja sætinu í kjölfar 4-0 sigurs á Víkingum.
KR Lengjudeild kvenna Mest lesið Súkkulaðimjólkin sögð betri fyrir íþróttafólk en íþrótta- eða orkudrykkir Sport Norðmenn rífast um hvort kynferðisafbrotamaður eigi að spila með landsliðinu Fótbolti Fyrri úrslitaleikurinn af tveimur Fótbolti Yfirmaður dómara segir það rétt að dæma markið af Liverpool Enski boltinn Tveir áhorfendur létust á mismunandi tímum á sama leikvangi Sport „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Íslenski boltinn McIlroy glaður að vera laus við pólitíkina í golfi Sport Mætti í vinnuna eins og ekkert sé 48 tímum eftir heimsmet í 160 km hlaupi Sport Stólarnir gáfust ekki upp og gengu frá Manchester Körfubolti Ísold verður bolabítur og heldur til á upphafslóðum REM næstu árin Sport Fleiri fréttir „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Sjá meira