Það er þetta mark sem skilur á milli Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 19. júlí 2021 10:01 Skömmu síðar var boltinn í netinu. Skjáskot Íslandsmeistarar Vals töpuðu óvænt fyrir botnliði ÍA í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu um helgina. Valur varð fyrir því óláni að skora tvö sjálfsmörk en varnarleikur liðsins í síðara marki ÍA var til umræðu í Stúkunni að leik loknum. „Þegar annað markið kemur er þetta orðin mjög alvarleg staða fyrir Val. Það mark sömuleiðis úr föstu leikatriði. Það er Alexander Davey sem grýtir því inn, það eru hávöxnu mennirnir sem eru í því að kasta boltanum inn í Pepsi Max deildinni,“ segir Kjartan Atli Kjartansson þáttastjórnandi áður en hann spyr Baldur Sigurðsson hvað gerist í kjölfarið. Umræðuna sem og markið sjálft má sjá í spilaranum neðst í fréttinni. „Þarna gerist hlutur sem ég held að Heimir hafi vitnað í áðan í viðtalinu þegar hann sagði „Við vorum alltaf að hugsa um að fara í sókn.“ Við verðum eiginlega bara að spila þetta aftur því þetta er varnarleikur sem er ekki í boði.“ „Þarna hleypur Guðmundur Andri [Tryggvason] frá manninum sínum, hann er með Sindra [Snæ Magnússon] þarna en hleypur svo af stað eins og hornamaður í handbolta sem ætlar í skyndisókn og skilur Sindra einan eftir á fjærstönginni sem klárar þetta vel. Er svo sem á leiðinni framhjá og Johannes Vall óheppinn en þetta er bara ekki í boði.“ „Við höfum farið yfir löng innköst áður í þessum þáttum. Þarft ekki endilega að vinna fyrsta boltann þótt þú viljir það. Snýst um að klára stöðuna sem gerist eftir það, næsta augnablik. Þarna er næsta augnablik ekki að hlaupa fram áður en Hannes Þór [Halldórsson] er kominn með boltann í hendurnar. Er svo rándýrt því Valur minnkar muninn og það er þetta mark sem skilur á milli í kvöld,“ sagði Baldur að lokum. Klippa: Stúkan: Annað mark ÍA Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Fótbolti Íslenski boltinn Pepsi Max stúkan Valur ÍA Mest lesið Gamla Skyttan veitti City þungt högg Enski boltinn Tómas Bent þurfti að yfirgefa völlinn eftir þungt höfuðhögg Fótbolti Dugði Chelsea ekki til sigurs að umkringja dómarann Enski boltinn Víkingur Reykjavík upp í Olís deildina Handbolti Sextán ára gulltryggði Arsenal mikilvægan sigur Enski boltinn Tveir látnir eftir skotárás nærri Players meistaramótinu Golf Tilbúinn að bjarga Tottenham: „Kranjcar, Crouchy og Defoe koma allir aftur“ Enski boltinn Verstappen segir Red Bull-bílinn ömurlegan Formúla 1 Töfrandi stund fyrir sextán ára strák: „Þetta er bara ekki eðlilegt“ Enski boltinn Haukar stöðvuðu sigurgöngu Eyjakvenna Handbolti Fleiri fréttir Fimmtán ára skoraði tvö þegar KR fór í úrslit Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu David James þjálfar markverði Vals Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Föstudagsfjör hjá KA: Svíi mættur í kjölfar Danijels Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Stjörnukonur burstuðu Þrótt og Þór/KA vann stórt fyrir austan Sjá meira
„Þegar annað markið kemur er þetta orðin mjög alvarleg staða fyrir Val. Það mark sömuleiðis úr föstu leikatriði. Það er Alexander Davey sem grýtir því inn, það eru hávöxnu mennirnir sem eru í því að kasta boltanum inn í Pepsi Max deildinni,“ segir Kjartan Atli Kjartansson þáttastjórnandi áður en hann spyr Baldur Sigurðsson hvað gerist í kjölfarið. Umræðuna sem og markið sjálft má sjá í spilaranum neðst í fréttinni. „Þarna gerist hlutur sem ég held að Heimir hafi vitnað í áðan í viðtalinu þegar hann sagði „Við vorum alltaf að hugsa um að fara í sókn.“ Við verðum eiginlega bara að spila þetta aftur því þetta er varnarleikur sem er ekki í boði.“ „Þarna hleypur Guðmundur Andri [Tryggvason] frá manninum sínum, hann er með Sindra [Snæ Magnússon] þarna en hleypur svo af stað eins og hornamaður í handbolta sem ætlar í skyndisókn og skilur Sindra einan eftir á fjærstönginni sem klárar þetta vel. Er svo sem á leiðinni framhjá og Johannes Vall óheppinn en þetta er bara ekki í boði.“ „Við höfum farið yfir löng innköst áður í þessum þáttum. Þarft ekki endilega að vinna fyrsta boltann þótt þú viljir það. Snýst um að klára stöðuna sem gerist eftir það, næsta augnablik. Þarna er næsta augnablik ekki að hlaupa fram áður en Hannes Þór [Halldórsson] er kominn með boltann í hendurnar. Er svo rándýrt því Valur minnkar muninn og það er þetta mark sem skilur á milli í kvöld,“ sagði Baldur að lokum. Klippa: Stúkan: Annað mark ÍA Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Fótbolti Íslenski boltinn Pepsi Max stúkan Valur ÍA Mest lesið Gamla Skyttan veitti City þungt högg Enski boltinn Tómas Bent þurfti að yfirgefa völlinn eftir þungt höfuðhögg Fótbolti Dugði Chelsea ekki til sigurs að umkringja dómarann Enski boltinn Víkingur Reykjavík upp í Olís deildina Handbolti Sextán ára gulltryggði Arsenal mikilvægan sigur Enski boltinn Tveir látnir eftir skotárás nærri Players meistaramótinu Golf Tilbúinn að bjarga Tottenham: „Kranjcar, Crouchy og Defoe koma allir aftur“ Enski boltinn Verstappen segir Red Bull-bílinn ömurlegan Formúla 1 Töfrandi stund fyrir sextán ára strák: „Þetta er bara ekki eðlilegt“ Enski boltinn Haukar stöðvuðu sigurgöngu Eyjakvenna Handbolti Fleiri fréttir Fimmtán ára skoraði tvö þegar KR fór í úrslit Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu David James þjálfar markverði Vals Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Föstudagsfjör hjá KA: Svíi mættur í kjölfar Danijels Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Stjörnukonur burstuðu Þrótt og Þór/KA vann stórt fyrir austan Sjá meira