Glæsileg gisting í hjarta Akureyrar Acco luxury apartments 25. júní 2021 13:46 Íbúðirnar eru rúmgóðar og fallegar. Þær henta fjölskyldum og vinahópum vel. Daníel Starrason Acco Luxury Apartments eru vel búnar íbúðir í hjarta Akureyrar. Ertu á leið norður í sumar? Ef þú vilt vera í miðbæ Akureyrar í nálægð við helstu kaffihús, veitingastaði og búðir þá bjóða Acco Luxury Apartments vel búnar og fallegar íbúðir í Skipagötu nálægt Ráðhústorgi. „Einhver sagði í langtímaspá að sumarið yrði fyrir norðan þetta árið. Það er svo sem ekkert nýtt,“ segir Helga Björk Eiríksdóttir, eigandi Acco á Akureyri. „Það er miklu skemmtilegra að taka á móti gestum í góðu veðri en íbúðir okkar eru vel búnar þannig að það fer vel um fólk hvernig sem veðrið lætur.“ Veðurblíða einkennir Akureyrarbæ og íbúðirnar eru vel staðsettar í hjarta bæjarins. DANÍEL STARRASON Íbúðirnar eru rúmgóðar og fallegar. Þær henta fjölskyldum og vinahópum vel. Fullbúið eldhús og þvottavél er í hverri íbúð, þurrkarar í sumum þeirra. „Nú í vor bættist í úrval íbúða þegar við breyttum gistiheimili okkar í þrjár íbúðir sem eru í sama húsi og Cafe Berlín. Það er afar vinsæll og góður veitingastaður sem reiðir fram vel útilátinn morgunverð og hádegisverð. Við eigum von á miklu lífi á Akureyri í sumar enda er svo margt skemmtilegt í boði hér á Norðurlandi,“ segir Helga Björk. Herbergin eru glæsileg og öll aðstaða til fyrirmyndar. DANÍEL STARRASON Það er auðvelt að skipuleggja frábæra daga á Norðurlandi. Nágrenni Akureyrar býður upp á marga áhugaverða staði, fjölbreytta afþreyingu og náttúruperlur sem gaman er að skoða. Fullbúin eldhús og þvottavél eru í öllum íbúðunum svo vel fer um fjölskyldur og vinahópa.DANÍEL STARRASON Það er lítið mál að gera sér dagsferðir frá Akureyri, til dæmis í Mývatnssveit og til Húsavíkur, skoða Goðafoss og Dettifoss og þá er Ásbyrgi einstök náttúruperla. Dalvík, Hrísey og Siglufjörður eru í þægilegri fjarlægð og ekki svo langt til Hofsóss. Sundferðir tilheyra ferðalögum og sundlaug Akureyrar er vinsæl en laugarnar á Dalvík, í Eyjafjarðarsveit og við Þelamörk eru mjög skemmtilegar líka. Þá er gaman að heimsækja hin ýmsu böð í nágrenninu, Bjórböðin á Árskógsströnd, Jarðböðin á Mývatni og Sjóböðin á Húsavík svo dæmi séu nefnd. Nánari upplýsingar um Acco Luxury Apartments er að finna á www.acco.is. Hægt er að bóka á vefnum en það má jafnframt senda fyrirspurnir á netfangið info@acco.is eða hringja í síma 547 2226. Akureyri Ferðalög Ferðamennska á Íslandi Mest lesið Kvartanir vegna bílastæðamála daglegt brauð hjá Neytendastofu Neytendur Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf „Það er hægt að byrja að fjárfesta með fimm þúsund krónum á mánuði“ Atvinnulíf „Það er draumur að vera á BMW og keyra fram á nótt” Samstarf Bretland aftur inn í Reiki í Evrópu hjá Sýn og Símanum Neytendur Rukkuð um sex þúsund kall eftir lagningu á Snæfellsnesi Neytendur Segir ofboðslegan undirliggjandi þrýsting á fasteignamarkaði Viðskipti innlent „Ekkert Viking eða Gull“ á nýjum stað í B5 Viðskipti innlent Gagnaverið að fyllast af Bitcoin-námuvélum Viðskipti innlent Upplýsingar bætast við titilinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Það er draumur að vera á BMW og keyra fram á nótt” Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Greiðsluáskorun „Ávísun á ánægjuleg viðskipti“ Sjá meira
Nánari upplýsingar um Acco Luxury Apartments er að finna á www.acco.is. Hægt er að bóka á vefnum en það má jafnframt senda fyrirspurnir á netfangið info@acco.is eða hringja í síma 547 2226.
Akureyri Ferðalög Ferðamennska á Íslandi Mest lesið Kvartanir vegna bílastæðamála daglegt brauð hjá Neytendastofu Neytendur Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf „Það er hægt að byrja að fjárfesta með fimm þúsund krónum á mánuði“ Atvinnulíf „Það er draumur að vera á BMW og keyra fram á nótt” Samstarf Bretland aftur inn í Reiki í Evrópu hjá Sýn og Símanum Neytendur Rukkuð um sex þúsund kall eftir lagningu á Snæfellsnesi Neytendur Segir ofboðslegan undirliggjandi þrýsting á fasteignamarkaði Viðskipti innlent „Ekkert Viking eða Gull“ á nýjum stað í B5 Viðskipti innlent Gagnaverið að fyllast af Bitcoin-námuvélum Viðskipti innlent Upplýsingar bætast við titilinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Það er draumur að vera á BMW og keyra fram á nótt” Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Greiðsluáskorun „Ávísun á ánægjuleg viðskipti“ Sjá meira