Sitjum áfram í köldum loftmassa af norðlægum uppruna Atli Ísleifsson skrifar 7. maí 2021 07:16 Þessir ferðamenn létu kalda loftið ekki á sig fá og fengu sér veitingar utandyra í Lækjargötunni fyrr í vikunni. Vísir/Vilhelm Það eru í grunninn litlar breytingar á veðri næstu daga frá því sem verið hefur undanfarið. Víðáttumikil hæð er ennþá yfir Grænlandi og við sitjum í köldum loftmassa af norðlægum uppruna.
Frá þessu segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar, en þar segir einnig að íbúar sunnan heiða geti þó reynt að láta fara vel um sig í sólskini og skjóli undir vegg. „Í dag er útlit fyrir norðlæga eða breytilega átt 3-10 m/s. Yfirleitt bjart veður vestanlands, en skýjað að mestu annars staðar og líkur á éljum. Taka ber fram að í kvöld og fram á nótt er möguleiki á slydduéljum eða éljum á höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesskaga. Á morgun er spáð norðaustanátt, víða á bilinu víða 5-10 m/s. Það léttir til sunnanlands og verður því yfirleitt léttskýjað um landið sunnan- og vestanvert. Norðaustantil verða él áfram viðloðandi. Hitinn í dag og á morgun á bilinu 0 til 8 stig yfir daginn, mildast á Suðvesturlandi. Horfur eru á næturfrosti um allt land.“ Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Norðaustan 3-10 m/s. Léttskýjað sunnan- og vestantil á landinu, hiti 3 til 8 stig að deginum. Skýjað og lítilsháttar él norðaustantil og hiti um frostmark. Á sunnudag: Norðaustan 5-13 m/s. Dálítil él á austanverðu landinu, en víða bjart vestantil. Hiti breytist lítið. Á mánudag, þriðjudag og miðvikudag: Norðan og norðaustan 3-10 m/s. Skýjað að mestu á Norður- og Austurlandi og sums staðar svolítil él, hiti 0 til 3 stig. Léttskýjað sunnan- og vestanlands og hiti 3 til 9 stig. Næturfrost víða um land. Á fimmtudag (uppstigningardagur): Hæg breytileg átt og víða léttskýjað, en norðan 5-10 og skýjað með austurströndinni. Hiti frá frostmarki á Austurlandi, upp í 10 stig að deginum um landið suðvestanvert.
Veður Mest lesið Ákærð fyrir að frelsissvipta dreng eftir dyraat Innlent Ingvar útskrifaður úr meðferð Innlent „Fyrir vikið er flokkurinn á hverfandi hveli“ Innlent Fínasta grillveður í kortunum Innlent Litla kaffistofan skellir í lás Innlent Varar við því að stórvirkjun í Skagafirði verði útilokuð Innlent Þingfundi ítrekað frestað meðan þingflokksformenn funda Innlent Vísað á brott vegna vímuefnaneyslu, ekki afskræmds varaforseta Erlent Bryndís vill íslenska hermenn á blað Innlent Fimm sviptir réttindum fyrir að aka of hratt á vinnusvæði Innlent Fleiri fréttir Búast má við töluverðum dembum Rigning víða í dag Skýjað og væta í flestum landshlutum Áfram hlýjast á Vesturlandi Hlýjast á Vesturlandi Gular viðvaranir í kortunum Hiti gæti náð sautján stigum suðaustantil Bætir í úrkomu í kvöld Rigning eða súld um landið allt Lægðardrag yfir landinu Hiti að sextán stigum Allt að átján stiga hiti fyrir vestan Allt að tuttugu stiga hiti Að átján stigum suðvestanlands Fjögurra daga bongóblíða í vændum Væta víðast hvar og hiti að sautján stigum Rigning og hvassviðri með suðurströndinni Bjart með köflum en blæs úr austri í kvöld Bjart og milt peysuveður Glittir í endurkomu sumarsins Að mestu léttskýjað fyrir sunnan og vestan Áframhaldandi norðan strekkingur Óveðrinu slotar en áfram hætta á skriðuföllum Grjóthrun á Siglufjarðarvegi og skriðufall í Neskaupstað Það versta yfirstaðið en veður áfram leiðinlegt á morgun Vaktin: Ekta sumarhret leikur landann grátt Skriðuhætta geti skapast á ólíklegum stöðum Lýsa yfir óvissustigi vegna veðurs Höfuðborgarsvæðið bætist í hópinn Lægð nálgast sem dýpkar ört Sjá meira