Silkeborg komið með annan fótinn upp í úrvalsdeildina eftir sigur í Íslendingaslagnum Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 6. maí 2021 19:00 Patrik Sigurður hefur verið frábær í liði Silkeborg á tímabilinu. Silkeborg Silkeborg lagði Esbjerg 2-0 í Íslendingaslag dönsku B-deildarinnar í knattspyrnu. Sigurinn þýðir að Silkeborg er svo gott sem komið upp um deild á meðan möguleikar Esbjerg eru í raun orðnir að engu.
Eftir markalausan fyrri hálfleik skoruðu heimamenn í Silkeborg tvö mörk um miðbik síðari hálfleiks og tryggðu sér 2-0 sigur. Skömmu áður en fyrra markið kom fékk Rodolph Austin sitt annað gula spjald í liði gestanna og þar með rautt. Það nýttu heimamenn sér og unnu eins og áður sagði 2-0 sigur. Patrik Sigurður Gunnarsson var á sínum stað í marki Silkeborg og hélt enn á ný marki sínu hreinu. Hann er að eiga ótrúlegt tímabil en hann var á láni hjá Viborg fyrri hluta þess og Silkeborg síðari hlutann. Bæði lið stefna hraðbyr upp í dönsku úrvalsdeildina og Patrik Sigurður varla tapað leik né fengið á sig á mark. Kjartan Henry Finnbogason var í byrjunarliði Esbjerg en náði ekki að setja mark sitt á leikinn. Andri Rúnar Bjarnason sat allan tímann á varamannabekk liðsins en Ólafur Kristjánsson er sem fyrr þjálfari þess. Þá var Stefán Teitur Þórðarson fjarri góðu gamni hjá Silkeborg. Sigur Silkeborg þýðir að liðið er nú í 1. sæti toppriðils dönsku B-deildarinnar. Þar á eftir kemur Viborg með leik til góða sem þýðir að það getur náð toppsætinu að nýju og svo Esbjerg, tíu stigum á eftir Silkeborg. Aðeins eru fjórir leikir eftir og tólf stig í pottinum. Það virðist því nær öruggt að Silkeborg og Viborg leiki í dönsku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.
Fótbolti Danski boltinn Mest lesið Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Íslenski boltinn Goðsögn fallin frá Enski boltinn Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Fótbolti Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Síðasti dansinn hjá Kelce? Sport Dreymir enn um Evrópu: „Ekki tilbúin að borga það sama“ Sport Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Enski boltinn Kærður af knattspyrnusambandinu Enski boltinn Fleiri fréttir Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Amanda hætt hjá Twente Jackson hóf Afríkumótið með látum Fullkrug leysir Origi af í Mílanó Versta tímabil Vinícius í mörg ár og samningaviðræður sigla í strand Kongóliðar byrja á sigri Sjá meira