Vaxandi austanátt og snjókoma eða él Atli Ísleifsson skrifar 7. apríl 2021 07:09 Frost á landinu verður víðast á bilinu eitt til níu stig. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir hægt vaxandi austlægri átt með snjókomu eða él í dag. Má reikna með að í kvöld verði tíu til fimmtán metrar á sekúndu, en á Norðvesturlandi verður norðaustan hvassviðri með éljum og skafrenningi. Gular viðvaranir eru í gildi á Vestfjörðum og við Breiðafjörð frá síðdegis í dag og til morguns.
Frost verður víðast á bilinu eitt til níu stig, en hiti nálægt frostmarki suðvestantil á landinu yfir daginn. „Það er útlit fyrir að gasmengunina leggi til norðvesturs og vesturs frá gosstöðvunum í dag, og loftgæði gætu orðið léleg norðantil á Reykjanesskaga. Norðlæg átt 10-15 m/s í fyrramálið og éljagangur um landið norðanvert, en bjartviðri sunnan heiða. Það hvessir smám saman á Suðaustur- og Austurlandi, og síðdegis verður norðvestan stormur og jafnvel rok á þeim slóðum. Áfram kalt í veðri. Úrkomulítið annað kvöld og dregur úr vindi vestanlands,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákortið fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Norðlæg átt 10-15 m/s, en gengur í norðvestan 18-25 SA- og A-til. Él á N- og A-landi, en bjartviðri sunnan heiða. Frost 2 til 9 stig. Úrkomuminna síðdegis og dregur úr vindi V-lands. Á föstudag: Norðvestan og vestan 5-10, en 13-20 SA- og A-lands fram eftir degi. Víða léttskýjað, en stöku él við N- og V-ströndina. Frost 0 til 7 stig að deginum. Á laugardag: Vestan og suðvestan 5-13 m/s. Dálítil snjókoma eða rigning um landið V-vert með hita um eða yfir frostmarki, en bjartviðri A-lands og frost 0 til 6 stig. Á sunnudag: Norðaustlæg eða breytileg átt og skúrir eða él. Hiti um eða yfir frostmarki. Á mánudag: Norðlæg átt og léttskýjað, en él um landið A-vert. Heldur kólnandi. Á þriðjudag: Gengur í norðanátt með snjókomu eða éljum um landið N-vert, en björtu veðri syðra. Kalt í veðri.
Veður Mest lesið Óku á yfir 60 og missa ökuréttindin Innlent Hreinsanir hafnar í Íran Erlent Twitter-morðinginn tekinn af lífi Erlent Stjúpsonur norska krónprinsins grunaður um nauðganir Erlent Steini frá Straumnesi látinn Innlent Sagði Sean Combs ekki virða svarið „Nei“ Erlent Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Innlent Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Innlent Ákærð fyrir að frelsissvipta dreng eftir dyraat Innlent Svona verða bílastæðagjöldin hjá Háskóla Íslands Innlent Fleiri fréttir Búast má við töluverðum dembum Rigning víða í dag Skýjað og væta í flestum landshlutum Áfram hlýjast á Vesturlandi Hlýjast á Vesturlandi Gular viðvaranir í kortunum Hiti gæti náð sautján stigum suðaustantil Bætir í úrkomu í kvöld Rigning eða súld um landið allt Lægðardrag yfir landinu Hiti að sextán stigum Allt að átján stiga hiti fyrir vestan Allt að tuttugu stiga hiti Að átján stigum suðvestanlands Fjögurra daga bongóblíða í vændum Væta víðast hvar og hiti að sautján stigum Rigning og hvassviðri með suðurströndinni Bjart með köflum en blæs úr austri í kvöld Bjart og milt peysuveður Glittir í endurkomu sumarsins Að mestu léttskýjað fyrir sunnan og vestan Áframhaldandi norðan strekkingur Óveðrinu slotar en áfram hætta á skriðuföllum Grjóthrun á Siglufjarðarvegi og skriðufall í Neskaupstað Það versta yfirstaðið en veður áfram leiðinlegt á morgun Vaktin: Ekta sumarhret leikur landann grátt Skriðuhætta geti skapast á ólíklegum stöðum Lýsa yfir óvissustigi vegna veðurs Höfuðborgarsvæðið bætist í hópinn Lægð nálgast sem dýpkar ört Sjá meira