Yfirleitt þurrt og bjart sunnan- og vestanlands Atli Ísleifsson skrifar 6. apríl 2021 07:14 Frost verður tvö til tólf stig þar sem kaldast verður í innsveitum á Norðausturlandi. Vísir/Vilhelm Landsmenn mega reikna með hægri, breytilegri átt í dag, en norðvestan strekkingi austast á landinu fram eftir degi. Það verður yfirleitt þurrt og bjart veður á sunnan- og vestanverðu landinu, og eftir hádegi rofar einnig til norðaustanlands.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar kemur fram að síðdegis séu þó líkur á stöku éljum á Suðausturlandi og við vesturströndina. „Frost 2 til 12 stig, kaldast í innsveitum á Norðausturlandi, en hitinn skríður yfir frostmark syðst á landinu yfir hádaginn. Hægt vaxandi austlæg átt á morgun, 10-15 m/s annað kvöld, en þá verður norðaustan hvassviðri norðvestantil á landinu. Það verður snjókoma víða um land á morgun og frost á bilinu 1 til 7 stig, en við suðvesturströndina verður hitinn nálægt frostmarki og úrkoman gæti fallið sem slydda,“ segir í tilkynningunni. Spákortið fyrir hádegið.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Suðaustlæg átt 5-13 m/s, en hvessir eftir hádegi, norðaustan 13-20 um kvöldið. Snjókoma víða um land og frost 1 til 7 stig, en slydda við SV-ströndina með hita nálægt frostmarki. Á fimmtudag: Norðan og norðaustan 10-18, en dregur úr vindi V-lands síðdegis. Él á N- og A-landi, en bjartviðri sunnan heiða. Frost víða 3 til 8 stig, en kólnar um kvöldið. Á föstudag: Norðvestan 10-18, en mun hægari vindur um landið V-vert. Víða léttskýjað, en stöku él við S- og A-ströndina. Hiti breytist lítið. Á laugardag: Vestlæg átt og dálítil snjókoma eða rigning V-til með hita um eða yfir frostmarki. Bjartviðri um landið A-vert og áfram kalt í veðri. Á sunnudag: Suðlæg eða breytileg átt og dálítil rigning eða snjókoma, en þurrt á NA- og A-landi. Heldur hlýnandi. Á mánudag: Útlit fyrir norðaustlæga átt með lítilsháttar snjókomu N- og A-lands. Hiti kringum frostmark.
Veður Mest lesið Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Innlent Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Valgarð Már er látinn Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Innlent Fleiri fréttir Éljagangur og slabb í kortunum Skil að ganga yfir landið með tilheyrandi úrkomu Ekkert lát á austlægum áttum Allhvass vindur og svalari en síðustu daga Áfram austanátt og kólnar í kvöld Ekkert óvenjulegt við kalt og bjart veður Hvassast við suðurströndina Má búast við skúrum eða éljum Víðast úrkomulítið en skúrir og slydduél austantil Mildri austanátt beint til landsins Áfram hvasst með suðurströndinni Slær áfram í storm á suðurströndinni Djúp lægð veldur stormi syðst á landinu Þurrt og bjart víða um landið Hvasst syðst á landinu Kólnandi veður og víða bjart Ákveðin austanátt á landinu öllu og víða snarpar hviður Víða rigning með köflum og bætir í vind í kvöld Róleg austanátt en hvessir á morgun Víða rigning og kólnar í veðri Minnkandi norðlæg átt en bætir í vind á morgun Þurrt og bjart suðvestantil en snjór og él víða Líkur á smá slyddu og snjókomu syðst Stíf norðvestlæg átt ásamt ofankomu Gæti slegið í storm og hringvegurinn lokaður Óvissustig á vegi milli Kirkjubæjarklausturs og Jökulsárlóns Gular veðurviðvaranir framundan Útlit fyrir hríðarveður á austasta hluta landsins í kvöld Frost og hægur vindur Norðaustlæg átt og allvíða él Sjá meira