Xabi Alonso ekki til Þýskalands eftir allt saman Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 26. mars 2021 18:31 Xabi Alonso verður áfram þjálfari B-liðs Real Sociedad þó svo allt hafi bent til þess að hann væri á leiðinni til Þýskalands. EPA-EFE/Javier Etxezarreta Fyrir fjórum dögum var greint frá því að Xabi Alonso yrði nýr þjálfari Borussia Mönchengladbach í þýsku úrvalsdeildinni. Svo er aldeilis ekki en í dag skrifaði hann undir nýjan samning hjá Real Sociedad og mun halda áfram að þjálfa B-lið félagsins.
Hinn 39 ára gamli Xabi Alonso gerði garðinn frægan með Real Madrid, Bayern Munchen og spænska landsliðinu hér á árum áður. Hann var fljótur að færa sig yfir í þjálfun eftir að skórnir fóru upp í hillu og virtist samkvæmt flestum miðlum að hann myndi fá stóra tækifærið næsta sumar. Marco Rose, þjálfari Gladbach, mun taka við Borussia Dortmund er þessu tímabili lýkur og var talið nær öruggt að Xabi mynda fylla skarð hans hjá Gladbach. Annað hefur nú komið í ljós. #Zubieta | #AurreraReala pic.twitter.com/WjNckV5aZz— Real Sociedad (@RealSociedadEN) March 26, 2021 Real Sociedad staðfesti fyrr í dag að Alonso muni stýra B-liði félagsins áfram á næstu leiktíð en sem stendur er B-lið Sociedad á toppi síns riðils í spænsku C-deildinni og á góða möguleika á að komast upp í næstefstu deild. Aðallið Sociedad er svo í 5. sæti La Liga, spænsku úrvalsdeildarinnar.
Fótbolti Spænski boltinn Mest lesið Samþykkja hvern Rússann á fætur öðrum inn á Ólympíuleikana Sport Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Enski boltinn Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum Enski boltinn Hafa áhyggjur af notkun gríma sem líkja eftir þjálfun í þunnu lofti Sport „Við eigum heima í Evrópu“ Enski boltinn Sú besta í heimi ætlar sér að koma til baka löngu fyrir Íslandsleikinn Fótbolti Dagskráin: Doc Zone í jólaskapi, fullt af leikjum í enska og HM í pílu Sport Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Enski boltinn Fleiri fréttir Sú besta í heimi ætlar sér að koma til baka löngu fyrir Íslandsleikinn Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Malí tók stig af heimamönnum Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Frönsk fótboltagoðsögn lést á jólunum Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Mo Salah tryggði Egyptum sigur annan leikinn í röð Færeysk landsliðskona til liðs við ÍBV Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Óvissa í Indlandi lætur City selja Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Sjá meira