United fengið flesta hagstæða VAR-dóma af stóru sex liðunum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. febrúar 2021 08:31 Harry Maguire, fyrirliði Manchester United, hefur verið duglegur að gagnrýna dómara ensku úrvalsdeildarinnar að undanförnu. getty/Naomi Baker Ekkert af stóru sex liðunum í ensku úrvalsdeildinni hefur fengið fleiri VAR-dóma sér í hag á þessu tímabili en Manchester United.
Eftir 1-1 jafnteflið við West Brom á sunnudaginn kvörtuðu bæði Ole Gunnar Solskjær, knattspyrnustjóri United, og Harry Maguire, fyrirliði liðsins, undan myndbandsdómgæslunni. Maguire, sem vildi fá vítaspyrnu í seinni hálfleik, sagði að United hefði ekkert fengið frá VAR eftir að fólk frá öðrum félögum byrjaði að tala um okkur. Þar vísaði hann í gagnrýni Jürgens Klopp, stjóra Liverpool, á hversu mörg víti United fengi. Þegar litið er á stóru sex liðin í ensku úrvalsdeildinni, United, Liverpool, Chelsea, Arsenal, Tottenham og Manchester City, hefur ekkert þeirra fengið fleiri hagstæða VAR-dóma en United, eða sjö talsins. Er þar átt við dóma sem var breytt og United hagnaðist á því. Chelsea og Liverpool eru næstefst á listanum með fimm hagstæða VAR-dóma hvort lið. Tottenham hefur fengið fjóra, City þrjá og Arsenal aðeins einn. No PL Big Six side has had more VAR decisions overturned in their favour than Man United this season. pic.twitter.com/A4rBLtpU9i— ESPN FC (@ESPNFC) February 15, 2021 United er í 2. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 46 stig, sjö stigum á eftir toppliði City sem á leik til góða. Næsti leikur United er gegn Real Sociedad í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar á fimmtudaginn.
Enski boltinn Mest lesið Uppgjörið: KR - ÍA 5-1 | Markahæstir í sögunni Íslenski boltinn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Enski boltinn Stórmerkileg byrjun Freys hjá Rosenborg Fótbolti Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn „Hræddur um að Höddi Magg hafi fengið hland fyrir hjartað“ Íslenski boltinn Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Enski boltinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Íslenski boltinn „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn Uppgjörið: FH - KA 3-0 | FH-ingar fjórum stigum frá fallsvæðinu Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Fleiri fréttir Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Brighton valtaði yfir nýliðana Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Sjá meira