Gylfi aldrei verið ánægðari hjá Everton Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. janúar 2021 16:00 Gylfi Þór Sigurðsson hefur nokkrum sinnum verið fyrirliði Everton á þessu tímabili. getty/Alex Pantling Gylfi Þór Sigurðsson segist líklega aldrei hafa verið eins ánægður hjá síðan hann kom til liðsins og nú.
Íslenski landsliðsmaðurinn hefur leikið mikið með Everton að undanförnu. „Ég er mjög ánægður og hef sennilega ekki verið jafn ánægður hjá Everton síðan ég kom. Vonandi getum við byggt ofan á síðustu mánuði,“ sagði Gylfi í viðtali í leikskrá Everton. „Það er mikill spenningur í kringum liðið og við erum allir ánægðir með það sem við erum að gera. Jafnvel þegar við spilum ekki vel náum við í góð úrslit sem er mjög jákvætt.“ Gylfi hefur að mestu leikið í sinni eftirlætisstöðu, sem fremsti miðjumaður, í síðustu leikjum Everton. „Mér líður vel þar og þessi staða hentar mér vel. Ég hef alltaf verið sóknarsinnaður leikmaður frekar en að vera aftarlega og hefja sóknir þaðan.“ Gylfi hefur verið fyrirliði Everton í nokkrum leikjum á tímabilinu, eitthvað sem hann kveðst mjög stoltur af. „Þetta er frábært félag sem á sér mikla sögu, topp félag í ensku úrvalsdeildinni. Margir frábærir leikmenn hafa spilað hér og eru hjá liðinu núna,“ sagði Gylfi sem segist ekki vera sérstaklega málglaður í búningsklefanum. „Ég tala ekki mest þar en læt verkin tala inni á vellinum. Ég legg hart að mér á degi hverjum og geri mitt besta. Ég tek starfi mínu alvarlega og reyni að ganga fram með góðu fordæmi.“ Næsti leikur Everton er gegn Newcastle United á Goodison Park á sunnudaginn.
Enski boltinn Mest lesið Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Segir starfið í húfi hjá Alfreð Handbolti Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Enski boltinn Littler sjóðheitur en sá fjórði besti varð fyrir áfalli Sport Van Gerwen: „Alveg sama um Luke og Luke“ Sport Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Enski boltinn Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Handbolti Aldrei spilað þarna en sagði strax já Enski boltinn Fleiri fréttir Andy Carroll mætir fyrir dóm eftir að hafa verið handtekinn Villa kvartar til Chelsea vegna flösku sem flaug á bekkinn Sunderland - Leeds | Nýliðaslagur í norðrinu Sjáðu magnaða vörslu Raya: „Þetta var stórkostlegt“ Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Sjá meira