Portúgal vann Sviss og er í harðri baráttu um sæti í átta liða úrslitum Sindri Sverrisson skrifar 22. janúar 2021 16:11 Victor Iturriza stóð vel fyrir sínu í dag. EPA-EFE/Anne-Christine Poujoulat Portúgal hafði betur gegn Sviss, 33-29, með því að skora þrjú síðustu mörk leiksins í milliriðli Íslands á HM í handbolta í Egyptalandi í dag.
Portúgal er því með sex stig eftir fjóra leiki en gæti enn þurft að vinna Frakkland í lokaumferðinni á sunnudag til að komast áfram í 8-liða úrslitin. Sviss er úr leik í þeirri baráttu, aðeins með tvö stig fyrir lokaleik sinn við Alsír. Andy Schmid var sem fyrr allt í öllu í sóknarleik Sviss og skoraði 11 mörk og átti fimm stoðsendingar. Victor Iturriza var markahæstur Portúgals með sjö mörk. Úrslitin þýða að til að Ísland komist áfram þarf liðið að vinna Frakkland á eftir og svo Noreg á sunnudag, og treysta á að Portúgal vinni Frakkland. Eða þá að Frakkland vinni Portúgal á sunnudag, en þá þyrfti Ísland að hafa unnið Frakkland og svo Noreg með fjögurra marka mun, og Noregur að hafa unnið Alsír. Rússland vann 32-20 sigur á Norður-Makedóníu í milliriðli fjögur og er með fimm stig í efsta sæti, en Makedóníumenn eru án stiga. Svíar geta farið aftur á toppinn með sigri á Slóvenum í kvöld í afar mikilvægum leik en Svíar eru með fimm stig og Slóvenar fjögur. Í forsetabikarnum vann Marokkó 32-25 sigur gegn Suður-Kóreu.
HM 2021 í handbolta Mest lesið Íhugar að hætta í Formúlu 1 Formúla 1 Víkingur - Vestri 4-0 | Víkingur er meistari meistaranna Íslenski boltinn Hjartnæm stund hjá Árna Gauti í Rosenborg Fótbolti Íslensku íþróttaugnablikin: „Hann var búinn að flauta“ Sport Guðlaug Edda á von á barni Sport Yfirmaður hjá Bayern hæðist að Liverpool Enski boltinn Tudor hættir störfum hjá Tottenham Enski boltinn Féll og lést skömmu fyrir fyrsta leik á nýuppgerðum HM leikvangi Fótbolti Handa- og fótalaus en sakaður um morð Sport Antonelli vann aftur og tók met af Hamilton Formúla 1 Fleiri fréttir Valsmenn í undanúrslitaeinvígið á móti KA KA sendi Eyjamenn í sumarfrí Ýmir vann Íslendingaslag Guðjón Valur og strákarnir hans unnu áttunda leikinn í röð Haukakonur komnar í 1-0 yfir eftir góðan endakafla Haukur Þrastar var stórkostlegur í stórsigri Ljónanna Gísli, Ómar og Elvar stigu stórt skref í átt að þýska titlinum Donni sótti mikilvægt stig gegn lærisveinum Arnórs Valskonur hnykluðu vöðvana í lokaumferðinni Fram tók forystuna í einvíginu gegn ÍR Vill ekki koma heim með „kúkinn á bakinu“ eftir dvöl hjá Barcelona „Hann lýgur bara til að komast undan þessu“ Fjölnir vann fyrsta leikinn Neitaði að hefja seinni hálfleik fyrr en stuðningsmenn hlýddu „Of stórt tækifæri til að hoppa ekki á það“ „Þetta eru tveir úrslitaleikir“ FH-ingar 1-0 yfir á móti meisturunum Haukarnir léku sér að Mosfellingum í fyrsta leik Strákarnir okkar með Serbíu og Úkraínu í riðli Hæstánægður á Íslandi þrátt fyrir neglu í andlitið Hópurinn sem á að koma Íslandi á fjórða stórmótið í röð „Stelpurnar skipta okkur alveg jafn miklu máli og strákarnir“ Janus hjá Barcelona næstu þrjú árin Snöggreiddust Ómari og báðu hann um að róa sig gegn Dönum Uppselt á alla leiki Íslands en HSÍ verður með hópferðir „Ekki fallegur sigur og áttum hann eiginlega ekki skilið“ „Djöfull er ég helvíti drullufúll“ Uppgjörið: Valur - HK 42-39 | Deildarmeistararnir þurftu framlengingu KA-menn fögnuðu eftir rosalegan leik í Eyjum Óðinn var fullkominn í flottum sigri Sjá meira