Höfðu varað við því að heilsugæslan væri ekki tilbúin Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 20. janúar 2021 19:45 Kvensjúkdómalæknar höfðu varað við því að heilsugæslan væri ekki í stakk búin til að taka yfir krabbameinsskimanir um áramótin. Þeir segja of mikla óvissu ríkja sem auki líkur á mistökum. Kona sem greindist með alvarlegar frumubreytingar fær engin svör um hvenær hún fær að fara í frekari rannsóknir.
Líkt og greint hefur verið frá færðust skimanir fyrir legháls- og brjóstakrabbameini frá Krabbameinsfélagi Íslands til heilsugæslu nú um áramótin. Áform um að færa skimanirnar voru ákveðin fyrir tæpum tveimur árum. Krabbameinsfélagið tók leghálssýni þar til í byrjun janúar en hætti að greina sýnin í nóvember, og sendi þau í pappakössum til heilsugæslunnar þegar yfirfærslan varð. Um er að ræða 2000 sýni. Heilsugæslan hefur hins vegar ekki getað sent sýnin í greiningu því samningar hafa ekki verið undirritaðir við rannsóknarstofu í Danmörku sem mun halda utan um allar greiningar frá Íslandi. Aðalbjörg Björgvinsdóttir, formaður Félags íslenskra fæðinga- og kvensjúkdómalækna, segist finna fyrir áhyggjum meðal kvenna. „Það er fyrst og fremst þessi óvissa fyrir allar þessar konur sem eru að bíða. Óvissa um hvort sýnin séu eðlileg eða ekki og fyrir þær konur sem sýnið er ekki eðlilegt þá lengir þetta tímann þar til rétt meðferð er hafin,” segir hún. Maður veit aldrei Brynja Dögg Sigurpálsdóttir greindist með alvarlegar frumubreytingar í október. Krabbameinsfélagið upplýsti hana um niðurstöðurnar í bréfpósti, og var á sama tíma tilkynnt að heilsugæslan myndi framvegis svara fyrirspurnum um niðurstöðurnar. Það varð þó ekki raunin. Brynja greindist með alvarlegar frumubreytingar í október. Hún hefur ekki fengið tíma í frekari rannsóknir.Vísir/Sigurjón „Heilsugæslan benti mér á að tala við Landspítalann, og Landspítalinn benti mér á að tala við heilsugæsluna,” segir Brynja. Í desember fékk hún síðan þau svör að hún fengi símtal, sem enn hefur ekki borist. Hún segir biðina erfiða. „Í haust var mikil umfjöllun um þetta, konur hvattar til að fara í þessar skimanir, því þetta geti leitt til alvarlegra sjúkdóma. Það er bara óþægilegt að vita ekki meira,” segir Brynja. „Og ég veit ekki nákvæmlega hvað þetta þýðir. Mér skilst að margir fái svona boðanir, en maður veit samt ekkert fyrr en maður skoðunina hvort þetta sé virkilega eitthvað alvarlegt.” Benti á annmarkana Aðalbjörg segir ekki eðlilegt að láta konur bíða svona. „Það er ekki eðlilegt og ef það er kerfi sem er virkt, sem tekur við og greinir sýnin þá á ekki að vera svona löng bið,” segir hún. Hún segir að félagið hafi bent á hvernig í pottinn væri búið í desember en á það hafi ekki verið hlustað. „Okkar félag benti heilbrigðisráðuneytinu, landlækni og yfirmanni heilsugæslunnar á í desember að það væru ýmsir annmarkar á því hvernig staðið hafi verið að þessu.” Vel hefði verið hægt að bregðast við. „Það var alveg tími til að átta sig á því að það voru ýmsir þættir í þessu máli sem ekki voru tilbúnir. Og hefði verið hægt að láta fyrrverandi kerfi halda áfram og sinna konunum sem skyldi þar til öruggt væri að kerfið sem tæki við væri að virka.” „Þetta er ekki að virka” Líkur á mistökum geti aukist og því þurfi að grípa inn í. „Það var tekin ákvörðun um breytingu. Og við erum komin inn í þá breytingu og hún er ekki til og hún er ekki að virka. Í stað þess að segja að þetta verði bara í lagi einhvern tímann, og þetta fer að lagast, að það komi bara upp á borðið að við stöndum hérna. Þetta er ekki að virka. Við þurfum að setja inn þætti sem brúa þetta bil. Þætti sem koma í veg fyrir að hlutir gerist,” segir Aðalbjörg sem vill að: „Tryggt verði að allir aðilar sem koma að þessum breytingum leggist á eitt við að brúa þetta bil, þetta millibils ástand þar sem við erum ekki með virkt kerfi. Að tappa í götin þannig að við getum tryggt öryggi þessara kvenna. Tryggt að við missum ekki af neinni konu og að skimunin veiti það öryggi sem hún á að gera.”
Skimun fyrir krabbameini Heilsugæsla Heilbrigðismál Tengdar fréttir Of lítil þátttaka í leghálsskimunum stórt vandamál Helmingi fleiri konur deyja úr leghálskrabbameini árlega en fyrir tíu árum. Kvensjúkdómalæknir segir þátttöku kvenna í leghálsskimunum vera stórt vandamál. 20. janúar 2021 08:15 „Þetta stríð er orðið hættulegt heilsu kvenna“ Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður Viðreisnar, er afar gagnrýnin á þá ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur, heilbrigðisráðherra, að færa skimun fyrir krabbameini í brjóstum kvenna og skimun fyrir leghálskrabbameini frá Krabbameinsfélagi Íslands og yfir til ríkisins. 19. janúar 2021 11:58 Tvö þúsund leghálssýni óhreyfð í pappakössum vikum saman Tvö þúsund sýni úr leghálsskimunum fyrir krabbameini hafa legið vikum saman óhreyfð í pappakössum vegna skorts á samningum. Vonir standa til að hægt verði að senda sýnin í greiningu fljótlega í næstu viku. 15. janúar 2021 19:11 Mest lesið Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Innlent Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Innlent Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Innlent Steini frá Straumnesi látinn Innlent Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Innlent Óku á yfir 60 og missa ökuréttindin Innlent Fleiri fréttir Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Sjá meira
Of lítil þátttaka í leghálsskimunum stórt vandamál Helmingi fleiri konur deyja úr leghálskrabbameini árlega en fyrir tíu árum. Kvensjúkdómalæknir segir þátttöku kvenna í leghálsskimunum vera stórt vandamál. 20. janúar 2021 08:15
„Þetta stríð er orðið hættulegt heilsu kvenna“ Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður Viðreisnar, er afar gagnrýnin á þá ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur, heilbrigðisráðherra, að færa skimun fyrir krabbameini í brjóstum kvenna og skimun fyrir leghálskrabbameini frá Krabbameinsfélagi Íslands og yfir til ríkisins. 19. janúar 2021 11:58
Tvö þúsund leghálssýni óhreyfð í pappakössum vikum saman Tvö þúsund sýni úr leghálsskimunum fyrir krabbameini hafa legið vikum saman óhreyfð í pappakössum vegna skorts á samningum. Vonir standa til að hægt verði að senda sýnin í greiningu fljótlega í næstu viku. 15. janúar 2021 19:11