Anníe Mist var örlagavaldur í lífi Katrínar Tönju án þess að vita af því Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. maí 2020 09:00 Anníe Mist Þórisdóttir og Katrín Tanja Davíðsdóttir er góðar vinkonur og stjórna nú saman hlaðvarpsþáttum þar sem þær fara yfir ferilinn hjá hvorri annarri. Það fer vel á með þeim eins og sjá má á þessari mynd af Instagram síðu Katrínar Tönju. Mynd/Instagram
Katrín Tanja Davíðsdóttir og Anníe Mist Þórisdóttir héldu áfram með hlaðvarpsþáttinn sinn „Dottir talks“ eða „Dóttir-spjallið“ og í öðrum þætti var komið að því að skoða upphafið, það er upphafið hjá Katrínu Tönju. Katrín Tanja Davíðsdóttir og Anníe Mist Þórisdóttir fóru yfir það hvernig Katrín Tanja byrjaði að æfa CrossFit á sínum tíma en Anníe Mist átti óaðvitandi mikinn þátt í því. Anníe Mist Þórisdóttir var orðin stórstjarna og heimsmeistari í CrossFit áður en Katrín Tanja byrjaði að æfa íþróttina. „Ég held að það viti þetta ekki margir,“ sagði Anníe Mist um leið og hún spurði Katrínu hvernig hún kynntist CrossFit íþróttinni. View this post on Instagram Dottir talks #2 is now live! Getting into how Katrin started her CrossFit Journey and the impacted it ended up having on both of us ????? ? #dottir #beginning A post shared by D O T T I R (@dottir) on Apr 30, 2020 at 5:05am PDT „Ég held að ég hafi alltaf verið mikil keppnismanneskja frá fæðingu. Ég var örugglega pirrandi sem barn því ég vildi keppa í öllu,“ sagði Katrín Tanja. „Þarna var ég sextán ára gömul, ég hafði hætt í fimleikum og var að prófa frjálsar íþróttir. Ein af bestu vinkonum sínum, Heiðdís, hafði æft stangarstökk með þér. Hún var að segja mér frá íþróttinni sem þú varst í,“ sagði Katrín Tanja og hélt áfram. „Hún sagði: Þú ert svolítið klikkuð eins og hún (Anníe) og til í að æfa mikið. Ég held að þú verðir hrifin af CrossFit,“ sagði Katrín Tanja. „Ég prófaði CrossFit ekki þá og fór í eitt ár í viðbót í frjálsar. Svo var það sumarið 2011 þegar þú vinnur heimsleikana í CrossFit. CrossFit verður í framhaldinu gríðarlega vinsælt á Íslandi, allir fara að æfa um fjölmiðlarnir fjalla mikið um þetta. Þeir voru að sýna myndbönd af þér frá CrossFit leikunum,“ sagði Katrín Tanja. View this post on Instagram D O T T I R ??? Inspire. Empower. SUPPORT one another. Together we are BETTER. // @dottir - Have you checked it out yet?! This is something me & @anniethorisdottir have been talking about for SO LONG & we are fiiiiinally actually working on it. - Right now we are doing DOTTIR TALKS that are lil videos chats of us talking anything between the start of our CF career, reminiscing old comp times to what inspires us, what we do when motivation lacks, how we approach failures .. as of now they are posted on IGTV but would love to get them to you on a podcast platform also so standby for that ????? - AND on monday (May 4th) we are going to be releasing a 3x a week for 3 weeks CORE (ona hehe) PROGRAM for all of you guys. We noticed that s what has been most requested through this time is extra ab work so stay tuned for monday 12pm EST we ll go live with our first one so PLEASE follow along with us ??????? A post shared by Katrín Tanja Davíðsdóttir (@katrintanja) on May 2, 2020 at 9:19am PDT „Mamma og amma voru að horfa á þig í sjónvarpinu. Ég hafði verið svolítið í lausu lofti þetta sumar því ég vildi ekki fara aftur í fimleikana eða vera áfram í frjálsum. Þær sögðu við mig: Af hverju prófar þú ekki þetta. Kannski verður þú góð í þessu. Ég hugsaði: Allt í lagi, ég ætla að prófa þetta,“ sagði Katrín Tanja. „Ég vildi gera það sem þú varst að gera. Í einum af fyrstu tímunum mínum þá gengur Anníe Þórisdóttir inn í salinn til að kenn a. Ég hugsaði bara: Guð minn góður, þetta er Anníe. Ég lagði ennþá meira á mig. Ég man eftir að þú hrósaðir mér einu sinni og þú mundir eftir nafninu mínu. Það er svo gaman að rifja þetta upp því ég leit svo mikið upp til þín og geri enn,“ sagði Katrín Tanja. „Ég var með stjörnur í augunum þegar ég sá þig. Það er svo sérstakt að hugsa til baka um þetta nú þegar við sitjum hérna og ræðum þetta og þú ert besta vinkonan mín í öllum heiminum,“ sagði Katrín Tanja hlæjandi. Það má hlusta á allt spjallið þeirra hér fyrir neðan. watch on YouTube
CrossFit Mest lesið Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Sport Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki Íslenski boltinn Heimir og leikmenn sitji eftir í súpunni: „Vandi á höndum“ Fótbolti Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti Heimir rýfur þögnina og þakkar fyrir stuðninginn Fótbolti Hvað er Onana að gera? Fótbolti „Ég var hálfviti fyrir að hafa ekki verið með hjálm“ Sport „Þrjátíu og sjö ára andsetinn karlmaður í Vesturbænum“ Íslenski boltinn Forsætisráðherra Írlands styður athugasemdir Heimis Fótbolti Higuain rekinn fyrir kynjamisrétti við dómara Fótbolti Fleiri fréttir Rómantískur Arnar mun alltaf tryggja Aroni met 13 ára sundkona vann þrenn verðlaun og virðist óstöðvandi Hvað er Onana að gera? Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki „Sjáum veikleika í þeirra leik“ Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Higuain rekinn fyrir kynjamisrétti við dómara Heimir rýfur þögnina og þakkar fyrir stuðninginn Ekki sé verið að normalísera hraða: „Beina áhættuhegðun úr umferðinni“ Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Byrjaðar að spila sem Breiðablik í EA FC: „Þetta er risa heimur“ Hvernig á að leysa varnarleikinn? Heimir og leikmenn sitji eftir í súpunni: „Vandi á höndum“ Barcelona þarf að víkja frá Nývangi aftur Dagskráin í dag: Blikar spila mikilvægan Evrópuleik Mbappe ekki með á æfingu franska landsliðsins Flúði grjótkast í heimalandinu og vann silfur Forsætisráðherra Írlands styður athugasemdir Heimis Arsenal náði sigurmarki gegn Emelíu í uppbótartíma „Ég var hálfviti fyrir að hafa ekki verið með hjálm“ Íslendingar gætu fengið fjórar milljónir á næsta Evrópumóti Reynir Þór hafði betur gegn Hauki í framlengdum leik Svekkjandi jafntefli hjá Glódísi Perlu og Cecilía Rán hélt hreinu í Íslendingaslag Vaknaði við skilaboð frá nýja þjálfaranum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning „Stundum ertu með hálfvita sem þjálfara“ Myndasyrpa: Áritanir og æfing í Laugardalnum Bjarki Steinn fótbrotinn og verður ekki með Sjá meira