Skjálfti í Bárðarbunguöskjunni í nótt Sylvía Hall skrifar 20. apríl 2020 06:39 Samkvæmt Veðurstofunni eru engin ummerki um gosóróa. Vísir
Jarðskjálfti að stærð 4,5 varð rétt fyrir klukkan fjögur í nótt í norðaustanverðri Bárðarbunguöskjunni. Eftirskjálftar fylgdu í kjölfarið en engin merki eru um gosóróa, að því er fram kemur á vef Veðurstofunnar. Síðast varð skjálfti af svipaðri stærðargráðu í Bárðarbungu, sem er á norðvestanverðum Vatnajökli, 5. janúar síðastliðinn. Eftirskjálftarnir hafa verið litlir til þessa. Sá stærsti mældist 1,2 að stærð um fjórum mínútum eftir að aðalskjálftinn reið yfir. Fjórir skjálftar hafa svo mælst í viðbót en allir undir einum að stærð. Skjálftar af þessari stærðargráðu eru algengir í Bárðarbungu en jarðhræringarnar þar tengjast ekkert hræringum á Reykjanesskaga, að sögn náttúruvársérfræðings. Á vef Veðurstofunnar er þess getið að þónokkur skjálftavirkni hafi verið undanfarið á Reykjanesskaga í tengslum við landris á svæðinu. Talið er að líklegasta skýringin á landrisinu sé kvikuinnskot sem myndast í jarðskorpunni. Vísbendingar eru um þrjú kvikuinnskot á Reykjanesskaga, tvö undir svæðinu norðvestan við fjallið Þorbjörn á þriggja til fjögurra kílómetra dýpi og eitt undir Sýrfelli, á átta til þrettán kílómetra dýpi, vestar á Reykjanesskaga
Eldgos og jarðhræringar Bárðarbunga Mest lesið Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Innlent Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Erlent Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Innlent Endaði út af eftir framúrakstur Innlent Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Innlent Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? Innlent Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Innlent Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Erlent Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Erlent „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Innlent Fleiri fréttir Hafnaði úti í fjöru Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Endaði út af eftir framúrakstur Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Sjö hundruð fá ekki að greiða atkvæði og bókstafirnir burt Ný fjarskiptakerfi séu viðkvæmari hvað varðar útbreiðslu Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Hægt að nálgast staðarspár fyrir almyrkvaslóðir á sérstöku spásvæði Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Tilkynningum um innbrot fjölgar á ný ESB vill „skapandi lausnir“ fyrir íslenskan sjávarútveg Óvissa með sólmyrkvaveður Götulokanir vegna Gleðigöngunnar taka gildi í dag Stækkunarstjórinn boðar „skapandi lausnir“ fyrir Íslendinga Hommar komi verst út þegar kemur að mismunun launa Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Fengu virkjunarleyfi í Strandabyggð Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Belgíski flugherinn sinnir gæslu á Íslandi Stöðvaður tvö kvöld í röð Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Slökktu eld á Kársnesi Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Sjá meira