Framkonur vilja hjálpa ÍR að halda úti kvennaliði Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. mars 2020 14:13 Fram varð bikarmeistari í sextánda sinn eftir stórsigur á KA/Þór, 31-18, laugardaginn 7. mars. vísir/daníel
Bikarmeistarar Fram í handbolta kvenna hafa boðist til að rétta ÍR hjálparhönd í að halda úti kvennaliði. Í síðustu viku bárust fréttir af því ÍR ætli ekki að tefla fram liði í Grill 66 deild kvenna á næsta tímabili. Þá verða U-lið karla og kvenna einnig dregin úr keppni. Í færslu á Facebook-síðu Fram bjóðast Framkonur að mæta í Breiðholtið næsta haust og mæta ÍR í fjáröflunarleik til að hjálpa félaginu að halda úti kvennaliði. „Því bjóðumst við til að mæta með bikarmeistaralið FRAM í Breiðholtið og mæta kvennaliði ÍR Handbolti í fjáröflunarleik til að aðstoða við að fjármagna næsta vetur í kvennahandboltanum hjá ÍR. Leikurinn getur farið fram í haust þegar samkomubanni hefur verið aflétt og útséð er með hvernig núverandi deildarkeppni fer fram,“ segir í færslunni. Þar segir einnig að Fram renni blóðið til skyldunnar að rétta ÍR hjálparhönd þegar kvennahandboltinn verður fyrir áfalli. Fram varð bikarmeistari fyrr í þessum mánuði og er nánast búið að tryggja sér deildarmeistaratitilinn. Fram er með fimm stiga forystu á Val þegar sex stig eru í pottinum. ÍR er í 6. sæti Grill 66 deildarinnar af tólf liðum. ÍR-ingar eru með 21 stig eftir 20 leiki. Einn af lykilmönnum Fram, landsliðskonan Þórey Rósa Stefánsdóttir, er uppalinn hjá ÍR.
Olís-deild kvenna Reykjavík Tengdar fréttir ÍR dregur kvenna- og U-liðið úr keppni Handknattleiksdeild ÍR hefur ákveðið að draga kvenna- og U-lið félagsins úr keppni á næstu leiktíð. Þetta staðfesti Sigurður Rúnarsson, formaður handknattleiksdeildar ÍR, í Sportinu í dag. 25. mars 2020 19:30 Mest lesið Uppgjörið: Györ ETO - Víkingur 2-2 | Tvö mörk Daníels komu Víkingi áfram í næstu umferð Fótbolti Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Willum hrifinn af norska módelinu Sport Frakkland - Spánn | Sæti í úrslitaleiknum undir Fótbolti Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Sakar lækni landsliðsins um loddaraskap Fótbolti Bróðir Yamals slær í gegn á HM Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Sjá meira
ÍR dregur kvenna- og U-liðið úr keppni Handknattleiksdeild ÍR hefur ákveðið að draga kvenna- og U-lið félagsins úr keppni á næstu leiktíð. Þetta staðfesti Sigurður Rúnarsson, formaður handknattleiksdeildar ÍR, í Sportinu í dag. 25. mars 2020 19:30