Rooney tekur sjálfan sig út úr liðinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. nóvember 2020 11:00 Wayne Rooney er orðinn 35 ára gamall en hann er bara með eitt mark í tíu deildarleikjum á þessu tímabili. EPA-EFE/PETER POWELL Wayne Rooney mun ekki spila með liði sínu Derby County í mikilvægum leik á morgun.
Wayne Rooney er tekinn við sem einn af tímabundnum knattspyrnustjórum Derby County eftir að Phillip Cocu var látinn taka pokann sinn á dögunum. Rooney hefur nú ákveðið það að spila ekki með liðinu heldur einbeita sér að fullu að starfi sínu sem knattspyrnustjóri Derby liðsins. Derby County hefur tapað báðum leikjum sínum síðan að Rooney hópurinn tók við og hann hefur spilað báða þessa leiki. Wayne Rooney will NOT play for Derby County on Saturday to focus solely on managing instead https://t.co/u3m60jyAoj— MailOnline Sport (@MailSport) November 27, 2020 Leikurinn á morgun er fallbaráttuslagur á móti Wycombe Wanderers en þar er svo sannarlega um sex stiga leik. Derby nær Wycombe að stigum með sigri en yrði samt áfram í fallsæti. Einhverjir myndu halda að það væri slæmt að missa mann eins og Wayne Rooney út úr liðinu en nýi stjórinn er harður á því að taka sjálfan sig út úr liðinu. Staðan er annars mjög svört hjá liðinu. Derby er nú í neðsta sæti deildarinnar og hefur aðeins unnið einn af síðustu þrettán leikjum sínum. Liðið er nú aðeins með sex stig út sex stigum frá öryggu sæti. Rooney er í fjögurra manna stjórateymi með þeim Liam Rosenior, Justin Walker og Shay Given og það vantar því ekki menn til að stjórna í leikjunum.
Enski boltinn Mest lesið Fótboltastrákur lést eftir hnéaðgerð Fótbolti Barnsmóðir NBA stjörnu hótaði að láta skera af honum puttana Sport Cristiano Ronaldo sagður fá 143 milljónir í laun á dag Fótbolti „Ef það verður ekki ég þá verður það bara einhver önnur“ Sport Byrjar meðferð vegna brjóstakrabbameins Handbolti Var uppi í áhorfendastúku þegar nafn hans var kallað upp í nýliðavali NBA Körfubolti Alexander Máni seldur til Midtjylland Íslenski boltinn Færeyingar í undanúrslitin á HM og gætu mætt Dönum í úrslitaleiknum Handbolti Real rústaði Salzburg og vann riðilinn Fótbolti Dagskráin: Besta deildin, formúla, golf og pílukast Sport Fleiri fréttir Kerkez orðinn leikmaður Liverpool Stefán Teitur og félagar auglýsa Tik Tok stjörnur Liverpool strákurinn hetjan þegar Englendingar fóru í úrslitaleikinn Lallana leggur skóna á hilluna Guardiola sýndi takta á ströndinni með leikmönnum sínum Þurfa að færa leik í ensku úrvalsdeildinni vegna krikketmóts Eigandi Jets í NFL kaupir stóran hlut í Crystal Palace Varð fyrir vonbrigðum með samningstilboð Liverpool Foreldrar Wirtz fá 1,4 milljarða vegna kaupa Liverpool Reiður sjálfum sér: „Ótrúlega heimskuleg mistök“ Tveir frá Arsenal og Bournemouth tilnefndir með nýjustu stjörnu Chelsea Samkomulag um kaupverð Kerkez í höfn Á förum frá Arsenal Erfiðasta byrjunin er hjá Arsenal og Man. United Liverpool gæti misst Mo Salah í sex leiki Bernardo Silva nýr fyrirliði Manchester City Liverpool byrjar titilvörnina á móti Bournemouth „Ég vil líka skora mörk“ Kæra Coote vegna ummæla sinna um Jürgen Klopp Spilaði í fyrsta skiptið eftir bílslysið Man. United sagt í viðræðum við Ekitike sem var líka orðaður við Liverpool „Ég vil drepa Manchester United“ Baulað stanslaust á Carlos Tevez í góðgerðaleik á Old Trafford Hafa ekki efni á að borga „Man United skattinn“ Garnacho vill vera áfram á Englandi Tottenham festir fyrstu kaup í stjóratíð Frank Man City að fá einn efnilegasta miðjumann Evrópu Atlético hætt við Hernandez og sýnir Robertson áhuga Milner spilar til fertugs í von um að slá leikjametið Þrátt fyrir að vera með fimm vill Newcastle einn markvörð til viðbótar Sjá meira