Solskjær hefur ekki áhyggjur af sinni stöðu: Erum að byggja upp Arnar Geir Halldórsson skrifar 7. nóvember 2020 10:31 Ole Gunnar Solskjær. vísir/Getty
Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, kveðst hafa fullan stuðning innan stjórnar félagsins þrátt fyrir slæma byrjun liðsins í ensku úrvalsdeildinni. Man Utd situr í 15.sæti ensku úrvalsdeildarinnar og hefur aðeins unnið tvo af fyrstu sex leikjum sínum í deildinni. Ekki voru úrslit liðsins í Meistaradeild Evrópu í vikunni til þess fallin að gleðja stuðningsmenn félagsins en Man Utd tapaði fyrir Istanbul Basaksehir. „Öll mín samtöl við félagið hafa snúið að því að skipuleggja okkur til langtíma. Að sjálfsögðu viljum við líka ná úrslitum í hverjum leik en ég hef bara átt gott samtal við stjórnina um okkar framtíðaráform,“ segir Ole Gunnar. „Við erum í uppbyggingu. Ég hef fundið fyrir stuðningi alla daga síðan ég tók við og félagið verður að horfa á heildarmyndina. Það er ekki hægt að kasta öllu á glæ til að bregðast við einum eða tveimur úrslitum. Það þarf að horfa á hlutina í stærra samhengi og horfa til þess á hvaða vegferð við erum.“ „Hugarfarið í hópnum hefur tekið miklum framförum. Strákarnir hafa gott hugarfar og vilja gera allt sem þeir geta til að bæta sig,“ „Í hvert skipti sem leikur tapar vakna gagnrýnisraddir úr öllum áttum en ég get ekki kvartað yfir hugarfari leikmanna,“ segir Ole. Manchester United heimsækir Everton í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni og hafa enskir fjölmiðlar sett leikinn upp sem úrslitaleik Norðmannsins fyrir framtíð sinni í stjórastól félagsins.
Enski boltinn Mest lesið Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Littler sjóðheitur en sá fjórði besti varð fyrir áfalli Sport Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Enski boltinn Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Handbolti Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Skoraði og fékk gult fyrir að benda Fótbolti Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Fleiri fréttir Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Sjá meira