Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. júní 2026 11:30 Victor Munoz er í spænska landsliðshópnum á heimsmeistaramótinu. Getty/ Johnnie Izquierdo Real Madrid fékk ekki aðeins Ibrahima Konaté frítt frá Liverpool í sumar því spænska stórliðið græddi einnig næstum því þrjá milljarða á fyrstu kaupum Liverpool í sumar.
Real Madrid gekk frá samningum við Ibrahima Konaté frá Liverpool fyrir nokkrum dögum, en franski varnarmaðurinn kemur til Real á frjálsri sölu. Fyrir einu ári tryggði Madrid sér einnig Trent Alexander-Arnold frá Liverpool fyrir aðeins tíu milljónir evra og hefur því fengið þessa tvo lykilmenn fyrir smáaura miðað við markaðinn í dag. Á meðan hefur Liverpool náð samkomulagi um að kaupa hinn 22 ára gamla Víctor Muñoz frá Osasuna fyrir 40 milljónir evra eða 5,8 milljarða íslenskra króna. Kantmaðurinn, sem er fyrrum leikmaður úr unglingaakademíu Real Madrid, bætir enn einum kaflanum við söguna um Liverpool og Real á leikmannamarkaðnum. Vegna fyrra samkomulags milli Real Madrid og Osasuna á Real Madrid rétt á fimmtíu prósentum af hvers kyns sölu í framtíðinni – sem þýðir að tuttugu milljónir evra fara nú beint til Real Madrid eða um 2,9 milljarðar íslenskra króna. Real Madrid græddi því næstum því þrjá milljarða íslenskra króna á kaupum Liverpool. Real Madrid gat keypt leikmanninn til baka fyrir átta milljónir evra en græddi mun meira á því að Osasuna seldi hann til Liverpool. Það var líka hagstæðari samningur fyrir Osasuna þrátt fyrir að helmingur upphæðarinnar færi til Real. Talandi um að strá salti í sárið eftir að hafa tekið tvo öfluga leikmenn frá Anfield á einu ári fyrir lítið. Víctor Muñoz var í akademíu Real Madrid og lék 53 leiki með b-liði Real Madrid frá 2023 til 2025. Hann náði aðeins að spila tvo leiki fyrir aðalliðið áður en hann fór til Osasuna í júlí í fyrra. View this post on Instagram A post shared by The Football Arena | Futbol (@thefootballarena)
Enski boltinn Spænski boltinn Liverpool FC Real Madrid CF Mest lesið Selfyssingar syrgja Sport Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Fótbolti Dauði varnarmannsins Fótbolti Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Fótbolti Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Sport Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Fótbolti Yoro ekki til Íslands Fótbolti Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur Enski boltinn Elías lengi frá eftir aðgerð á nýra Fótbolti Fleiri fréttir Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Barry sendi Everton upp í fimmta sæti og Newcastle vann Hull Skytturnar skotnar í kaf í Brighton Tottenham sökk dýpra og enn án sigurs í fimm leikjum Fjórföld löggæsla fyrir harðasta ríg Englands JJ Gabriel mættur til Barcelona Sjá meira