United sagt í sambandi við Pochettino Sindri Sverrisson skrifar 5. nóvember 2020 13:48 Ole Gunnar Solskjær virðist orðinn valtur í sessi. Getty/Matthew Peters
Manchester United hefur áhuga á að ráða Mauricio Pochettino sem knattspyrnustjóra í stað Ole Gunnars Solskjær eftir dapra frammistöðu liðsins að undanförnu. Þetta fullyrðir staðarmiðillinn Manchester Evening News í dag. Þar segir að forráðamenn United hafi haft samband við fulltrúa Pochettino með það fyrir augum að hann verði næsti knattspyrnustjóri liðsins. United approach Mauricio Pochettino about becoming next manager #mufc https://t.co/xWNZaUCsrf— Man United News (@ManUtdMEN) November 5, 2020 MEN hefur áður sagt frá því, í desember í fyrra, að Pochettino vilji taka við United. Miðillinn segir að sú afstaða hafi ekki breyst. Pochettino, sem er 48 ára gamall, stýrði síðast Tottenham en var rekinn þaðan í nóvember 2019, eftir fimm ár í starfi. Hálfu ári áður hafði hann komist með liðið í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu, en tapað þar 2-0 fyrir Liverpool. Mauricio Pochettino er sagður spenntur fyrir því að taka við Manchester United.Getty/Justin Setterfield Solskjær hefur verið stjóri United frá því í desember 2018. Undir hans stjórn hafnaði liðið í 3. sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð, þó 33 stigum á eftir meisturum Liverpool. United er aðeins með sjö stig eftir fyrstu sex leiki sína í deildinni í vetur, og liðið tapaði 2-1 gegn Istanbul Basaksehir í Meistaradeildinni í gærkvöld eftir að hafa unnið fyrstu tvo leiki sína í keppninni. Tapi United gegn Everton á laugardaginn gæti liðið farið inn í landsleikjahléið í 17. sæti úrvalsdeildarinnar.
Enski boltinn Mest lesið Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Enski boltinn Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Enski boltinn Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Handbolti Fleiri fréttir Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Sjá meira