Haukur Helgi átti góðan leik er Andorra vann loks Evrópuleik Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 27. október 2020 20:50 Haukur Helgi átti góðan leik í kvöld. @morabancandorra
Haukur Helgi Pálsson spilaði sinn þátt í fyrsta Evrópusigri MB Andorra á leiktíðinni í kvöld. Liðið vann þá tíu stiga sigur, 76-66, á Panevėžio Lietkabelis frá Litháen. Elvar Már Friðriksson átti frábæran leik er lið hans Siauliai tapaði með fimm stiga mun í litháensku bikarkeppninni er liðið mætti Klaipedos Neptunas, lokatölur 87-82. Andorra hafði fyrir leikinn tapað öllum þremur Evrópuleikjum sínum á tímabilinu en annað var upp á teningnum í kvöld. Liðið lék sinn langbesta leik til þessa en það hefur mögulega hjálpað til að Lietkabelis hafði aðeins unnið einn leik fram að þessu. Leikurinn var nokkuð jafn framan af og voru Andorra aðeins stigi yfir í hálfleik, staðan þá 39-38. Í síðari hálfleik reyndust Andorra mun betri aðilinn og unnu á endanum tíu stiga sigur, 76-66. Haukur Helgi skoraði níu stig og tók sjö fráköst í leik kvöldsins. Andorra er nú í 4. sæti eftir fjóra leiki með einn sigur og þrjú töp. Þá átti Elvar Már Friðriksson góðan leik í Litháen er lið hans Siauliai tapaði á útivelli gegn Klaipedos Neptunas í 16-liða úrslitum bikarsins þar í landi. Elvar Már og félagar eiga þó enn möguleika á að fara áfram þar sem liðin mætast í síðari leik 16-liða úrslitanna eftir slétta viku. Siauliai tapaði leik kvöldsins með fimm stiga mun, lokatölur 87-82 Neptunas í vil. Hinn 25 ára gamli Elvar Már var með betri mönnum liðsins. Ásamt því að skora 19 stig í leiknum þá gaf hann þrjár stoðsendingar og tók fjögur fráköst.
Körfubolti Mest lesið Diogo Jota lést í bílslysi Fótbolti Arnar Pétursson dæmdur úr leik á Íslandsmótinu og er mjög ósáttur Sport Allt sem við vitum um banaslys Diogo Jota Enski boltinn Yfirlýsing frá Liverpool: „Ólýsanlegur missir“ Enski boltinn Glódís mætti ekki á æfingu Fótbolti Fótboltaheimurinn syrgir fallna félaga Fótbolti Hafnaði ágengum Egyptum en er til í að taka við félagsliði Handbolti EM í dag: Þungt högg, óvæntur fáni og indverskur matur Fótbolti Ásthildur Helga: Þetta var bara lélegt Fótbolti Stefán vann í stað Arnars Sport Fleiri fréttir Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Sjá meira