Lægð í örum vexti Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 9. október 2020 07:44 Í næstu viku er spáð lægðagangi með rigningu og mildu veðri. Vísir/Vilhlem
Í dag er útlit fyrir norðan- og norðvestanátt á landinu, fimm til þrettán metra á sekúndu en þrettán til átján í vindstrengjum á Suðausturlandi og Austfjörðum. Þá er spáð rigningu norðan- og austanlands en léttir smám saman til á sunnan- og vestanverðu landi, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Í nótt verður svo kominn hæðarhryggur yfir landið með rólegheitaveðri í öllum landshlutum. Því er tilvalið að nýta morgundaginn til útiveru því á sunnudag gengur hann í hvassa suðaustanátt þegar lægð sem nú er í örum vexti við Nýfundnaland nálgast landið með hitaskilum. Í næstu viku er síðan útlit fyrir lægðagang suður af og yfir landið með suðlægum áttum, rigningu og mildu veðri. Veðurhorfur á landinu: Norðan- og norðvestanátt, 5-13 m/s en 13-18 í vindstrengjum á Suðausturlandi og Austfjörðum. Rigning norðan- og austanlands, en slydda eða snjókoma til fjalla. Skýjað með köflum sunnan og vestanlands en eftir hádegi. Lægir seint í dag og í kvöld og dregu úr úrkomu á norðaustanverðu landinu. Hæg breytileg átt á morgun og allvíða léttskýjað en snýst í vaxandi suðaustanátt og þykknar upp með rigningu suðvestantil seint annað kvöld. Hiti 2 til 10 stig í dag, hlýjast á Suðausturlandi en kólnar á morgun. Á laugardag: Hæg breytileg átt og víða léttskýjað. Hiti 2 til 7 stig yfir daginn. Vaxandi suðaustanátt, þykknar upp og fer að rigna á Suður- og Vesturlandi um kvöldið. Á sunnudag: Suðaustan 10-18 m/s og talsverð rigning sunnan- og vestanlands en snýst í suðvestan 8-13 með skúrum síðdegis. Hægari vindur og þurrt um landið norðaustanvert, en fer einnig að rigna þar seinnipartinn. Hiti 4 til 9 stig. Á mánudag: Breytileg átt 3-10 og dálítil væta í flestum landshlutum, en styttir upp síðdegis. Hiti 4 til 9 stig. Á þriðjudag: Hægt vaxandi sunnanátt. Skýjað og þurrt að kalla, en léttskýjað á Norður- og Austurlandi. Hiti 5 til 10 stig. Á miðvikudag: Ákveðin sunnanátt með súld eða rigningu, en þurrt norðaustan- og austanlands. Hiti 6 til 12 stig, hlýjast á Austurlandi.
Veður Mest lesið Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Innlent Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Innlent Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Innlent Steini frá Straumnesi látinn Innlent Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Innlent Óku á yfir 60 og missa ökuréttindin Innlent Fleiri fréttir Búast má við töluverðum dembum Rigning víða í dag Skýjað og væta í flestum landshlutum Áfram hlýjast á Vesturlandi Hlýjast á Vesturlandi Gular viðvaranir í kortunum Hiti gæti náð sautján stigum suðaustantil Bætir í úrkomu í kvöld Rigning eða súld um landið allt Lægðardrag yfir landinu Hiti að sextán stigum Allt að átján stiga hiti fyrir vestan Allt að tuttugu stiga hiti Að átján stigum suðvestanlands Fjögurra daga bongóblíða í vændum Væta víðast hvar og hiti að sautján stigum Rigning og hvassviðri með suðurströndinni Bjart með köflum en blæs úr austri í kvöld Bjart og milt peysuveður Glittir í endurkomu sumarsins Að mestu léttskýjað fyrir sunnan og vestan Áframhaldandi norðan strekkingur Óveðrinu slotar en áfram hætta á skriðuföllum Grjóthrun á Siglufjarðarvegi og skriðufall í Neskaupstað Það versta yfirstaðið en veður áfram leiðinlegt á morgun Vaktin: Ekta sumarhret leikur landann grátt Skriðuhætta geti skapast á ólíklegum stöðum Lýsa yfir óvissustigi vegna veðurs Höfuðborgarsvæðið bætist í hópinn Lægð nálgast sem dýpkar ört Sjá meira