Leikið á Akureyri í kvöld Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. október 2020 13:49 KR - Keflavík Domino's deild karla, veturinn 2019 - 2020. Körfubolti. Foto: Daniel Thor/Daniel Thor
Flest bendir til þess að leikur Þórs Ak. og Keflavíkur í Domino's deild karla í kvöld fari fram eins og áætlað var. Sóttvarnayfirvöld hafa hvatt íþróttafélög til að gera hlé á æfingum og keppni fyrir börn og fullorðna næstu tvær vikurnar vegna kórónuveirufaraldursins. Þá eru íþróttafélög á höfuðborgarsvæðinu hvött til þess að fresta öllum keppnisferðum út á land. Þrátt fyrir þetta er leikurinn fyrir norðan í kvöld enn á dagskrá. „Hvorugt liðið er á höfuðborgarsvæðinu og Keflvíkingar voru komnir langleiðina til Akureyrar þegar þessar fréttir bárust. Dómararnir voru líka komnir upp í flugvél. Við tilkynnum það sérstaklega ef þetta breytist,“ sagði Snorri Örn Arnaldsson, mótastjóri KKÍ, við Vísi í dag. Auk leiksins á Akureyri eru sjö leikir í yngri flokkum á dagskrá auk leiks Hamars/Þórs og Stjörnunnar í 1. deild kvenna. „Ef félögin koma sér saman um að fresta leikjum í dag eða þar til nánari tilmæli berast þá frestum við þeim vandræðalaust. Við tökum frekari ákvörðun með leikinn í 1. deild kvenna á eftir,“ sagði Snorri en stjórn KKÍ og mótanefnd fundar klukkan 16:00 í dag, eftir upplýsingafund sóttvarnayfirvalda. Viðureign Þórs Ak. og Keflavíkur átti að fara fram á föstudaginn en var frestað vegna þess að nokkrir Keflvíkingar voru í sóttkví fram yfir leikdag. Leikur Þórs Ak. og Keflavíkur hefst klukkan 20:00 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 3.
Dominos-deild karla Þór Akureyri Keflavík ÍF Mest lesið Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport Stoltur af stráknum en ætlar ekki að kaupa hann aftur Handbolti „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Enski boltinn Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Goðsögn fallin frá Enski boltinn Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum Enski boltinn Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Fótbolti Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Enski boltinn Fleiri fréttir Meisturunum fatast flugið „af því hitt liðið er betra“ Jólagleði í Garðinum Jólagjöf í Keflavík: Remy Martin snýr aftur Missti alveg stjórn á skapinu en það skilaði sigri Stórstjarna úr WNBA-deildinni í heimsókn á Íslandi ÍR-ingar bæta við sig reyndum og hittnum Króata Í bann fyrir að kasta flösku í barn Hjalti Þór ráðinn aðalþjálfari Álftaness Kolbrún María kom við sögu í endurkomu Hannover Næstframlagshæstur í grátlegu tapi Fékk næstum 4,5 milljóna króna sekt fyrir að sýna dómara fingurinn „Komum eins og aumingjar inn í þennan leik“ „Jólasteikin mun bragðast betur í ljósi þessa sigurs“ Stjarnan - Álftanes 108-104 | Unnu grannaslaginn naumlega Uppgjörið: Ármann - ÍA 102-83 | Ármann náði í gríðarlega mikilvæg stig í fallbaráttunni með sigri gegn Skagamönnum Jokic tók NBA-met af Abdul-Jabbar í nótt KR á frábærum stað en getur ekki unnið titilinn Útilokar ekki breytingar: „Er klárlega að líta í kringum mig“ Uppgjörið: Keflavík - Njarðvík 93-83 | Enn taplausir í Sláturhúsinu „Ánægður að spila ekki betur en þetta en vinna samt“ „Svo lengi sem það er ekki jákvæð og góð umfjöllun um okkur erum við sáttir“ „Hefðum þurft að hafa heppnina með okkur í liði“ ÍR - Valur 82-85 | Baráttusigur í Breiðholti „Sáttur að geta farið heim, borðað vel og fengið mér nokkra kalda“ Tindastóll - KR 130-117 | Kláruðu gestina í seinni hálfleik Þór Þ. - Grindavík 94-106 | Baráttusigur gegn löskuðu liði Þórs Liðsfélagar Guðbjargar ekki fæddir þegar hún spilaði fyrsta leikinn Þola þeir ekki gott umtal? „Helmingur minna leikmanna skilur ekki íslensku“ „Ef við hefðum ekki verið að setja þessi skot þá hefðum við skíttapað“ KR á toppinn Sjá meira
Uppgjörið: Ármann - ÍA 102-83 | Ármann náði í gríðarlega mikilvæg stig í fallbaráttunni með sigri gegn Skagamönnum