Einhver mesti útlánavöxtur síðustu ára Stefán Ó. Jónsson skrifar 22. ágúst 2020 19:38
Ný íbúðalán hjá bönkunum rjúka út og er vöxturinn einhver sá mesti sem sést hefur árum saman að sögn hagfræðings. Það kunni að bera með sér að skuldsetning heimila sé að aukast. Í nýlegri mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar segir að síðastliðinn júnímánuður hafi verið umsvifamesti einstaki mánuðurinn, að minnsta kosti frá árinu 2013, í hreinum nýjum íbúðalánum hjá bönkunum. Alls voru í þeim mánuði lánuð út ný óverðtryggð íbúðalán á breytilegum vöxtum fyrir rúmlega 31 milljarð króna, að frádregnum uppgreiðslum, innan bankanna. Nýjar tölur úr Seðlabankanum bera hins vegar með sér að útlánunum hafi aðeins farið fjölgandi síðan. Í júlí hafi bankarnir þannig veitt ný óverðtryggð íbúðalán á breytilegum vöxtum fyrir rúmlega 45 milljarða króna, sem eru um 50 prósent aukning frá metmánuðinum á undan. Þó svo að inni í þetta vanti tölur frá lífeyrissjóðunum segir hagfræðingur hjá Viðskiptaráði efast um að það skekki heildarmyndina. Vöxturinn sé einhver sá mesti sem sést hafi síðustu árum, heildarútlán hjá bönkunum hafi aukist um 7 prósent á síðustu þremur mánuðum og að einhverju leyti sé skuldsetning heimilanna að aukast. Hagstæðari lánakjör leiki þar lykilhlutverk en þróunin í þessum efnum muni að líkindum ráðast af þremur þáttum: Hversu mikið heimilin séu tilbúin að skuldsetja sig, hvað Seðlabankinn gerir og svo af bolmagni bankanna. „Bönkunum er þrengri stakkur sniðinn heldur en fyrir 10 árum síðan, þannig að kemur sjálfsagt að því að það muni hægja á þessari þróun fyrr eða síðar. Engu að síður er þetta mikill vöxtur en erfitt að segja hversu lengi þetta mun halda áfram,“ segir Konráð S. Guðjónsson. Hvað skuldsetningu heimilanna varðar segir Konráð að hún sé að einhverju leyti afsprengi þeirra aðgerða sem ráðist var í í vor, eins og lækkun stýrivaxta, til að bregðast við kórónuveiruniðursveiflunni. „Það væri hægt að mæta því að einhverju leyti með aukinni skuldsetningu, að auka ráðstöfunartekjurnar og efla innlenda eftirspurn í gegnum erfiðasta hjallann. En þá er spurning hvenær það verður of mikið, að ekki verður lengur nægjanlegur gjaldeyrir til staðar til að fjármagna innflutninginn á öllu sem við kaupum o.s.frv.. og það fer að veltast út í verðlagið,“ segir Konráð. Haldi sú þróun áfram til lengri tíma megi ætla að verðbólguþrýstingur fari að myndast. Þorri nýju lánanna eru óverðtryggð og á breytilegum vöxtum, sem eru viðkvæm fyrir verðbólguskoti. Konráð segir tilhneiginguna hafa verið þá að þegar verðbólgan hefur hækkað hafi Seðlabankinn brugðist við með hækkun stýrivaxta, vaxtahækkanir hjá bönkunum hafi síðan fylgt í kjölfarið. Ekki sé þó útlit fyrir óðaverðbólgu, í íslensku sögulegu samhengi. Engu að síður segir Konráð að verðbólgan sé nokkuð viðkvæm, það sé því ekki hægt að útiloka aukna verðbólgu. „Ef það er verið að auka ráðstöfunartekjur heimilanna í gegnum þessi auknu útlán og við erum að sjá krónuna veikjast þá ætti það ekki að koma á óvart þó svo að verðbólgan skríði eitthvað upp.“ Framtíð lánanna sé í höndum Seðlabankans. Það er vaxtaákvörðun í næstu viku, sem tekur m.a. mið af verðbólgu og stöðunni í hagkerfinu. „Ef þau í peningastefnunefndinni sjá fram á erfið misseri fram undan er ekkert víst að þau hækki vexti þó svo að verðbólguhorfurnar haf eitthvað versnað," segir Konráð. Greinendur Landsbankans telja þannig líkur á að vaxtastigið verði óbreytt. Á sama tíma og útlán til heimila aukast er samdráttur á fyrirtækjahliðinni, sem Konráð segir ákveðið áhyggjuefni. Það sé ekki leiðin út úr kreppunni. Til að hjólin fari aftur að snúast og ný störf veðri til af þurfi fjárfesting fyrirtækja að aukast. „Vonandi sjáum við það gerast sem fyrst,“ segir Konráð.
Seðlabankinn Íslenskir bankar Húsnæðismál Mest lesið Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Viðskipti innlent Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Sjá meira