Cecilía bætir met Þóru í dag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. mars 2020 13:30 Cecilía Rán Rúnarsdóttir og Þóra Björg Helgadóttir. Vísir/Samsett
Cecilía Rán Rúnarsdóttir verður í dag yngsti markvörður A-landsliðanna frá upphafi þegar hún byrjar leikinn á móti Norður Írum á æfingamótinu á Spáni. Cecilía Rán Rúnarsdóttir er fædd 26. júlí 2003 og er því 16 ára, 7 mánaða og 7 daga í dag. Cecilía bætir þar með met Þóru B. Helgadóttur sem var hingað til yngsti landsliðsmarkvörður Íslands frá upphafi. Þóra Björg Helgadóttir spilaði sinn fyrsta A-landsleik á móti Bandaríkjunum 10. maí 1998. Þóra er fædd 5. maí 1981 og var því nýorðin sautján ára gömul þegar hún kom inn á sem varamaður tíu mínútum fyrir leikslok í þessum leik í Bethlehem í Pennsylvaniu fylki. Nákvæmlega var Þóra 17 ára og 5 daga gömul þegar hún spilaði sinn fyrsta A-landsleik. Leikurinn endaði með 1-0 sigri bandaríska landsliðsins. Cecilía Rán bætir met Þóru um 148 daga með því að spila leikinn í dag. Þóra Björg var fyrst í byrjunarliði íslenska A-landsliðsins í 2-0 tapi á móti Svíþjóð í undankeppni HM 26. ágúst 1998 eða þegar hún var 17 ára, 3 mánaða og 21 dags gömul. Cecilía Rán bætir því byrjunarliðsmet hennar um 256 daga en Þóra á enn metið yfir að vera yngsti landsliðsmarkvörðurinn í keppnisleik.Yngsti landsliðsmarkvörðurinn frá upphafi: 16 ára, 7 mánaða og 7 daga - Cecilía Rán Rúnarsdóttir á móti Norður Írlandi 2020 17 ára og 5 daga - Þóra Björg Helgadóttir á móti Bandaríkjunum 1998 17 ára, 9 mánaða og 27 daga - Friðrik Friðriksson á móti Færeyjum 1982 17 ára, 9 mánaða og 29 daga - María Björg Ágústsdóttir á móti Rúmeníu 2000
EM 2021 í Englandi Mest lesið Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Goðsögn fallin frá Enski boltinn Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Íslenski boltinn Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Fótbolti Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Fótbolti Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Kærður af knattspyrnusambandinu Enski boltinn „Ég elska peninga“ Sport Fleiri fréttir United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Amanda hætt hjá Twente Sjá meira