Maður sem stakk vegfarendur skotinn til bana nærri París Kjartan Kjartansson skrifar 3. janúar 2020 14:37 Lögreglumenn tryggja vettvang í Hautes-Bruyers-garðinum. Vísir/EPA
Lögreglan í París skaut mann til bana sem stakk að minnsta kosti fjóra vegfarenda í almenningsgarði í bænum Villejuif nærri París í dag. Tveir eru sagðir hafa særst alvarlega.Breska ríkisútvarpið BBC segir að lögreglumenn hafi elt árásarmanninn uppi og skotið hann nærri garðinum. Óstaðfestar heimildir hermi að maðurinn hafi verið vopnaður sprengjuvesti. Lögregla hefur beðið fólk um að halda sig frá Hautes-Bruyers-garðinum á meðan aðgerðir standa þar yfir. Misvísandi fréttir hafa verið um hvort að tvö fórnarlömb árásarmannsins hafi látist af sárum sínum. BBC, sem sagði í fyrstu að tveir væru látnir, segir nú að tveir séu alvarlega sárir. Árásin hafi átt sér stað fyrir utan stórverslun og er talið að maðurinn hafi valið fórnarlömbin af handahófi. AP-fréttastofan hefur aftur á móti eftir Vincent Jeanbrun, bæjarstjóra í Villejuif, í viðtali við BFM-TV-sjónvarpsstöðina, að maðurinn hefði ráðist á fólk í garði en svo flúið að verslunarmiðstöð þar sem lögreglumenn skutu hann. Yves Lefebvre, talsmaður félags lögreglumanna, segir að lögreglumennirnir hafi skotið árásarmanninn ítrekað af ótta við að hann gæti sprengt sig í loft upp.Fréttin hefur verið uppfærð.
Frakkland Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Fleiri fréttir Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Sjá meira