Misjafnt gengi landsliðskvennana í Svíþjóð | Sara Björk kom inn af bekknum Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 2. ágúst 2020 15:05 Sara Björk kom inn af varamannabekk Lyon er liðið tryggði sér sæti í úrslitum franska bikarsins. Vísir/Bára
Landsliðskonurnar Glódís Perla Viggósdóttir, Svava Rós Guðmundsdóttir og Guðrún Arnardóttir voru allar eldlínunni í sænsku úrvalsdeildinni í dag. Þá kom landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir inn af varamannabekk Lyon í sínum fyrsta mótsleik er liðið komst naumlega áfram í franska bikarnum. Glódís Perla var óvænt í stöðu hægri bakvarðar er Rosengård lagði Piteå 2-1 á heimavelli í dag. Rosengård var komið í 2-0 eftir aðeins 20 mínútur en gestirnir bitu frá sér í síðari hálfleik. Þær minnkuðu muninn á 58. mínútu en nær komust leikmenn Piteå ekki. Lokatölur eins og áður sagði 2-1 og Rosengård þar með komið á toppinn með 19 stig, tveimur meira en Göteborg sem á þó leik til góða. Svava Rós Guðmundsdóttir lék allan leikinn er Kristianstad gerði 1-1 jafntefli við Umeå. Jafntefli einkar svekkjandi niðurstaða þar sem Umeå jafnaði undir lok venjulegs leiktíma. Þá var Guðrún Arnardóttir í byrjunarliði Djurgården sem tapaði 1-0 á útivelli gegn Växjö. Kristianstad er í 4. sæti deildarinnar með 12 stig á meðan Djurgården er í 8. sæti með átta stig. Að lokum tryggði Nikita Parris franska stórliðinu Lyon 1-0 sigur á Guingamp í undanúrslitum franska bikarsins. Sara Björk spilaði síðustu 20 mínúturnar í leiknum.
Fótbolti Sænski boltinn Franski boltinn Mest lesið Skotið sem geigaði og breytti öllu fyrir Ísland Handbolti Íslendingar bregðast við stórtíðindum kvöldsins: „Takk fyrir Jesú“ Handbolti Íslenskur sigur á morgun gulltryggir sæti í undanúrslitum Handbolti Skýrsla Henrys: Andlegt gjaldþrot enn og aftur Handbolti „Snorri á alla mína samúð“ Handbolti Hleraði leikhlé Norðmanna Handbolti Króatar Dags í góðri stöðu en Ísland í þröngri stöðu Handbolti „Mjög svekkt og sár“ út í Skíðasamband Íslands Sport Lærisveinar Arons úr leik eftir tap í framlengdum leik Handbolti Gísli gagnrýnir fyrirkomulagið á EM Handbolti Fleiri fréttir Víkingur og Valur mætast í úrslitum Reykjavíkurmótsins Hlín á láni til Fiorentina FH selur Sigurð Bjart til Spánar Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Börsungar ósáttir eftir að PSG náði táningi frá þeim Barry bjargaði stigi fyrir Everton Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Kristall snýr aftur „þroskaðri og fullorðnari“ Sagðir borga 200 milljónir fyrir Kristal Mána Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Hákon í leikbanni og Lille steinlá á heimavelli Orri sneri aftur eftir meiðsli Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Sjáðu Yamal skora „besta mark tímabilsins“ Tókst bara að jafna gegn tíu mönnum í toppslagnum Logi skoraði sjálfsmark í sigri Mikael Egill fagnaði endurkomusigri Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Heiðdís leggur skóna á hilluna Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Ásdís Karen lagði upp í öruggum sigri gegn botnliðinu Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Mbappé skaut Real Madrid upp í toppsætið Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Sjá meira