Dagskráin í dag: Risaslagur á Ítalíu, Lengjudeildin og enska B-deildin Ísak Hallmundarson skrifar 7. júlí 2020 06:00 Cristiano Ronaldo og félagar mæta Zlatan og AC Milan í stórveldaslag í ítalska boltanum. vísir/getty
Það eru þrjár beinar útsendingar á sportrásum Stöðvar 2 í dag. Stórveldin AC Milan og Juventus mætast í ítölsku úrvalsdeildinni, Leiknir R. og ÍBV mætast í Lengjudeildinni og Nottingham Forest og Fulham mætast í toppslag í næstefstu deild á Englandi. Þetta byrjar kl. 15:55 þegar Nottingham Forest og Fulham mætast í Championship-deildinni á Englandi. Forest eru í 5. sæti og Fulham í 4. sæti en leikurinn er mikilvægur fyrir bæði lið í baráttunni um sæti í ensku úrvalsdeildinni. Leikurinn er sýndur í beinni á Stöð 2 Sport 2. Kl. 17:50 hefst bein útsending frá leik Leiknis R. og ÍBV í Lengjudeildinni á Stöð 2 Sport. Bæði þessi lið ætla sér upp í Pepsi Max deildina og má búast við hörkuleik. ÍBV eru með fullt hús stiga og deila toppsætinu með Fram en Leiknir hafa unnið sér inn sjö stig eftir þrjár umferðir, tveimur stigum minna en Eyjamenn. Leikurinn er í opinni dagskrá. AC Milan tekur síðan á móti Juventus í leik sem sýndur er í beinni á Stöð 2 Sport 2 kl. 19:35. Milan hefur verið á góðu skriði undanfarið og unnu Lazio sannfærandi í síðasta leik og sömu sögu má segja af Juventus sem hafa unnið alla sína leiki eftir að boltinn byrjaði að rúlla aftur í júní. Juventus er á toppi deildarinnar með sjö stiga forskot á Lazio á meðan Milan er í 6. sæti og eru í harðri baráttu um sæti í Evrópudeildinni.
Ítalski boltinn Lengjudeildin Enski boltinn Fótbolti Mest lesið Tveir leikmenn gætu fengið 65 ára fangelsi Sport Markvörður með skóflu á lofti í miðjum úrslitaleik Fótbolti Antonelli sló 18 ára gamalt stigamet Lewis Hamilton Formúla 1 Tólf Íslandsmet féllu á Íslandsmótinu í sundi Sport Dagskráin í dag: Rólegheit eftir langa helgi Sport Þrenna frá Lewandowski og Rashford í stuði Fótbolti Vill halda Heimi og írska liðið lélegt Fótbolti Markaregn í enska boltanum í dag Fótbolti Sjáðu mörkin og allt það helsta úr meistaraslagnum Fótbolti Öruggur sigur City Enski boltinn Fleiri fréttir Vill halda Heimi og írska liðið lélegt Markvörður með skóflu á lofti í miðjum úrslitaleik Markaregn í enska boltanum í dag Inter aftur á toppinn eftir sigur á Lazio Sjáðu mörkin og allt það helsta úr meistaraslagnum Þrenna frá Lewandowski og Rashford í stuði Kristall Máni á skotskónum í sigurleik Enginn varið fleiri víti en Mamardashvili Daníel Tristan skoraði sigurmark Malmö Albert skoraði en Fiorentina enn án sigurs og á botninum Fjögur mörk, varið víti og Villa upp í sjöunda sætið Öruggur sigur City Fyrsta jafntefli Real Madrid Fanney sænskur meistari í fyrstu tilraun Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Færðu auglýsingaskiltin til að trufla löng innköst Arsenal Sjáðu alla dramatíkina og mörkin í enska í gær Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Sjáðu Messi skjóta Inter Miami áfram í fyrsta sinn Hvetur Napólí til að sækja óánægðan Mainoo Parma nældi í stig gegn toppliði AC Milan Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Sanngjarn heimasigur Algjör markaþurrð í Seríu A Tveir í röð hjá West Ham og þægilegt hjá Everton Dramatík í uppbótartíma Union Berlin stöðvaði ótrúlega sigurgöngu Bayern Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Emelía og stöllur með átta stiga forskot Amorim fannst vanta hugrekki til að klára leikinn Sjá meira