Í beinni: Saksóknari segir Skandia-manninn bera ábyrgð á morðinu Atli Ísleifsson skrifar 10. júní 2020 07:15 Olof Palme var forsætisráðherra Svíþjóðar á árunum 1969 til 1976 og aftur frá 1982 til dauðadags. Getty Sænski rannsóknarhópurinn sem hefur haft morðið á forsætisráðherranum Olof Palme til rannsóknar mun kynna niðurstöður sínar á fréttamannafundi klukkan 7:30 að íslenskum tíma. Palme var myrtur að kvöldi 28. febrúar 1986 og er morðrannsóknin sú umfangsmesta í sögunni að því er fram kemur í sænskum fjölmiðlum. 34 ár eru liðin frá morðinu og hefur leitin að morðingja forsætisráðherrans staðið yfir æ síðan. Fjölmargar kenningar og vísbendingar hafa verið rannsakaðar í þaula en nú bendir flest til að niðurstaða kunni að liggja fyrir. Þannig sagði saksóknarinn Krister Petersson, sem hefur farið fyrir rannsóknarhópnum síðustu ár, fyrr á árinu að hann væri bjartsýnn á að geta kynnt hvernig málin atvikuðust og hver hafi borið ábyrgð á því. Fyrr í vikunni sögðu sænskir fjölmiðlar frá því að morðvopnið hafi loks fundist. Hægt verður að fylgjast með textalýsingu af blaðamannafundinum að neðan.
Sænski rannsóknarhópurinn sem hefur haft morðið á forsætisráðherranum Olof Palme til rannsóknar mun kynna niðurstöður sínar á fréttamannafundi klukkan 7:30 að íslenskum tíma. Palme var myrtur að kvöldi 28. febrúar 1986 og er morðrannsóknin sú umfangsmesta í sögunni að því er fram kemur í sænskum fjölmiðlum. 34 ár eru liðin frá morðinu og hefur leitin að morðingja forsætisráðherrans staðið yfir æ síðan. Fjölmargar kenningar og vísbendingar hafa verið rannsakaðar í þaula en nú bendir flest til að niðurstaða kunni að liggja fyrir. Þannig sagði saksóknarinn Krister Petersson, sem hefur farið fyrir rannsóknarhópnum síðustu ár, fyrr á árinu að hann væri bjartsýnn á að geta kynnt hvernig málin atvikuðust og hver hafi borið ábyrgð á því. Fyrr í vikunni sögðu sænskir fjölmiðlar frá því að morðvopnið hafi loks fundist. Hægt verður að fylgjast með textalýsingu af blaðamannafundinum að neðan.
Svíþjóð Morðið á Olof Palme Mest lesið Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Erlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Innlent Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Sjá meira