Adidas lætur Özil róa Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. júní 2020 12:30 Mesut Özil er búinn að missa samninga við tvo sína stærstu styrktaraðila. getty/Stuart MacFarlane
Þýski íþróttavöruframleiðandinn Adidas ætlar ekki að framlengja samning sinn við Mesut Özil, leikmann Arsenal. Adidas er annað stórfyrirtækið sem lætur Özil róa á síðustu tveimur árum en samningur hans við bílaframleiðandann Mercedes var ekki framlengdur 2018. Samkvæmt Bild eru tvær ástæður fyrir því að Adidas framlengir ekki samning Özils. Annars vegar vegna ímyndar hans og hins vegar er um sparnaðaraðgerð að ræða. Özil hætti í þýska landsliðinu eftir heimsmeistaramótið 2018 og sagði að hann hefði verið gerður að blóraböggli fyrir slæmu gengi liðsins. Í aðdraganda HM hitti hann Recep Erdogan, forseta Tyrklands, sem mæltist misjafnlega fyrir. Erdogan var svo svaramaður í brúðkaupi Özils í fyrra. Í desember gagnrýndi Özil svo meðferð Kínverja á úígúrum í Xinjiang. Í kjölfarið var hætt við að sýna leiki Arsenal í Kína og Özil var tekinn út úr kínversku útgáfunni af tölvuleiknum Pro Evolution Soccer. Nú síðast var Özil gagnrýndur fyrir að vilja ekki taka á sig launalækkun hjá Arsenal vegna kórónuveirufaraldursins. Þjóðverjinn ku fá 350 þúsund pund í vikulaun.
Enski boltinn Mest lesið 16 ára í stuði er Arsenal og Liverpool fóru áfram Enski boltinn Gabríel: Komnir með Fo... nóg af því að tapa Íslenski boltinn Hringdi í Mourinho eftir að hafa hafnað honum Fótbolti Uppgjörið: Fram - Breiðablik 1-3 | Engin bikarþynnka í Blikum Íslenski boltinn Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai Enski boltinn Halda úrslitaleikinn aftur 30 árum síðar Fótbolti Haukar og Selfoss leika til úrslita Íslenski boltinn Þrír Íslendingar spiluðu og fóru áfram Fótbolti Real kastaði næstum frá sér sigrinum Fótbolti Coutinho og Neymar uppfylla gamlan draum Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai 16 ára í stuði er Arsenal og Liverpool fóru áfram Vonarstjarna Man. Utd vill burt frá félaginu Raheem Sterling játar sök Sjáðu veislu Leeds og markið sem gerði framherjann brjálaðan „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Richarlison sorgmæddur: „Af hverju?“ Milner aftur til Liverpool Leedsarar léku sér að Newcastle VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Goðsögn hjá West Ham fallin frá „Eins og þeir séu hræddir við að vinna“ Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Rio betri en Barcola: „Ekki þess virði sem þeir keyptu hann á“ Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin „Markið hefði ekki átt að standa“ Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Brighton valtaði yfir nýliðana Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Sjá meira