Veggirnir með myndum af Kobe Bryant hafa verið látnir í friði Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. júní 2020 08:30 Veggmynd með Kobe Bryant og dóttur hans Gianna Bryant. Getty/Mario Tama
Vanessa Bryant, ekkja Kobe Bryant, vakti athygli á því að veggmyndirnar með glæsilegum myndum af Kobe og dóttur þeirra Giönnu, hafa verið látnar í friði í óspektunum og uppþotinu í Los Angeles borg. Mikið hefur verið eyðilagt í óeirðunum í Bandaríkjunum síðustu daga þar sem skemmdarverk hafa verið unnin á fjölmörgum verslunum og öðrum stöðum. Murals of Kobe Bryant have remained unscathed amid protests and riots in Los Angeles https://t.co/CAPwu71PAd— Sports Illustrated (@SInow) June 2, 2020 Kobe Bryant lést í þyrluslysi 26. janúar síðastliðinn, ásamt þrettán ára dóttur sinni Giönnu og sjö öðrum, á leið í körfuboltaleik hjá liði Giönnu. Fráfall Kobe Bryant var mikið áfall fyrir alla ekki síst í Los Angeles þar sem Kobe Bryant bjó og spilaði allan sinn feril með Los Angeles Lakers liðinu. Photos of Kobe and Gigi murals in LA undamaged (via Vanessa Bryant/IG) pic.twitter.com/Z7KfTzRIza— ESPN Los Angeles (@ESPNLosAngeles) June 2, 2020 Flott leið til að minnast Kobe Bryant var að listamenn máluðu glæsilegar veggmyndir af honum einum og með Giönnu út um alla borg. Þessar stórglæsilegu veggmyndir hafa fengið að vera í friði í óeirðunum og er það tákn um þá virðingu sem íbúar Los Angeles bera fyrir honum og það sem hann gerði fyrir borgina. Vanessa Bryant minntist á þetta um leið og hún tjáði sig um George Floyd sem dó eftir harkalega og ómanneskjulega handtöku hvítra lögreglumanna í Minneapolis. Kobe Bryant spilaði með Los Angeles Lakers frá 1996 til 2016 og varð fimm sinnum NBA-meistari með félaginu. Bryant skoraði 25,0 stig að meðaltali í 1346 deildarleikjum með Lakers liðinu og 25,6 stig að meðaltali í 220 leikjum í úrslitakeppninni.
NBA Andlát Kobe Bryant Dauði George Floyd Mest lesið Helenu nóg boðið: „Ætlum við í alvöru að leyfa þessu að gerast?“ Körfubolti Leysti frá skjóðunni um hvað gerðist í þriðja hring Sport Yfirlýsing KKÍ: Hvorki vilja né geta tjáð sig um mál Davíðs Körfubolti „Ég væri dáinn ef hún væri ekki hér“ Enski boltinn Úr efstu deild í fótbolta á HM í utanvegahlaupum: „Ætla að njóta sársaukans“ Sport Trump vill koma í veg fyrir að UEFA banni Ísrael Fótbolti Dóttir auðkýfings orðin forseti félags 23 ára gömul Fótbolti Chiesa græðir á óheppni landa síns Fótbolti Kristófer djarfur í Fantasy: Tuttugu mínusstig í síðustu tveimur umferðum Enski boltinn Hvergi nærri hætt: „Markmiðið var alltaf að sýna gömlu góðu Berglindi“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Yfirlýsing KKÍ: Hvorki vilja né geta tjáð sig um mál Davíðs Helenu nóg boðið: „Ætlum við í alvöru að leyfa þessu að gerast?“ Formaður dómaranefndar KKÍ tjáir sig ekki Um þögnina varðandi dómaramál KKÍ: „Þurfum að komast til botns í þessu“ Áfall fyrir Houston Forráðamenn KKÍ neita að tjá sig um dómaramálin Fannst skilaboðin frá dómaranefnd galin Mynd af ellefu ára leikmanni Real vekur athygli Davíð hættur: „Dreginn á asnaeyrunum“ Skömmuðust sín fyrir tap gegn Fjallinu: „Hann var ekki svona stór þá“ Anthony Davis byrjaður að æfa á ný Ólöf Helga tekur við stjórninni: „Orðnar mjög spenntar fyrir fyrsta þætti“ NBA Evrópudeildin muni hefjast eftir tvö ár Tryggvi varði flest skot á EM og tók næstflest fráköst Þjóðverjar Evrópumeistarar í annað sinn Grikkir stálheppnir að landa bronsinu Tyrkir pökkuðu Giannis og Grikkjum saman á leið í úrslit „Að spila á Íslandi er frábært tækifæri fyrir mig“ Þjóðverjar í úrslit EM í fyrsta sinn í tuttugu ár Bertone á leið í Stjörnuna en byrjar í fimm leikja banni Annar fyrrverandi leikmaður Sacramento Kings til Álftaness Telur ólíklegt að Kawhi eða Clippers verði refsað Slóvenar saltvondir út í dómarana: „Hvað er hægt að segja?“ Þjóðverjar í undanúrslit þrátt fyrir stórleik Doncic Álftanes mætir stórliði Benfica Finnar afgreiddu Georgíu með stæl Grikkland í undanúrslit á EM Tyrkir hentu Íslandsbönunum úr leik Njarðvíkingar semja við öðruvísi Kana Ísraelar númeri of litlir fyrir Grikki Sjá meira