Glæsileg gisting í hjarta Akureyrar Acco Luxury Apartments 27. maí 2020 09:10 Daníel Starrason
Veðursæld Akureyrar er margrómuð og nú bjóðast frábær tilboð á gistingu í hjarta bæjarins á Acco Luxury Apartments í sumar og haust. „Það er vel þekkt að veðrið er „alltaf gott“ hér á Akureyri og við vonumst til þess að fólk flykkist norður til okkar í sumar. Það er bæði gaman og þægilegt að vera í miðbænum og héðan er stutt í allar áttir,“ segir Helga Björk Eiríksdóttir, eigandi Acco á Akureyri. Veðurblíða einkennir Akureyrarbæ og íbúðirnar eru vel staðsettar í hjarta bæjarins. Daníel Starrason Íbúðirnar eru mjög vel búnar, rúmgóðar og fallegar. Þær henta fjölskyldum og vinahópum vel. Fullbúið eldhús og þvottavél er í hverri íbúð. Þá er stutt í veitingastaði og afþreyingu. „Hér við hliðina er Acco Guesthouse sem við rekum einnig og þar í sama húsi er Cafe Berlín. Það er frábær veitingastaður sem reiðir fram vel útilátinn morgunverð og hádegisverð. Oft er mikið líf hér í bænum og mögulegt að velja úr ýmisskonar afþreyingu svo sem siglingum, gönguferðum, hvalaskoðun og margt fleira er í boði,“ útskýrir Helga Björk. Herbergin eru glæsileg og öll aðstaða til fyrirmyndar. Daníel Starrason Í tilboðinu býðst vikudvöl og einnig langar helgar og því auðvelt að skipuleggja frábæra daga á Norðurlandi með fjölskyldunni. Nágrenni Akureyrar býður upp á marga áhugaverða staði, fjölbreytta afþreyingu og náttúruperlur sem gaman er að skoða. Fullbúin eldhús og þvottavél eru í öllum íbúðunum svo vel fer um fjölskyldur og vinahópa.Daníel Starrason „Það er lítið mál að gera sér dagsferðir frá Akureyri, til dæmis í Mývatnssveit og til Húsavíkur, skoða Goðafoss og Dettifoss og þá er Ásbyrgi einstök náttúruperla. Dalvík, Hrísey og Siglufjörður eru í þægilegri fjarlægð og ekki svo langt til Hofsóss. Sundferðir tilheyra ferðalögum og er heimsókn í sundlaug Akureyrar ævintýri líkust. Þá er gaman að heimsækja hin ýmsu böð í nágrenninu, Bjórböðin á Árskógsströnd, Jarðböðin á Mývatni og Sjóböðin á Húsavík svo dæmi séu nefnd.“ Daníel Starrason Nánari upplýsingar um tilboðin er að finna hér. Hafa skal beint samband á netfangið info@acco.is.
Ferðamennska á Íslandi Ferðalög Mest lesið Reyndist sannspár um koss dauðans Lífið Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Gagnrýni Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Birna María og Egill eignuðust dreng Lífið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Lífið Þetta hefur gefið mér nýtt líf Lífið samstarf Fleiri fréttir Þetta hefur gefið mér nýtt líf Húð- og feldumhirðuvörur sem draga úr ofnæmisvöldum frá hundum og köttum Hárlos hjá körlum: Hvað veldur og hvernig er hægt að grípa inn í? Nýr rafbíll BMW afhjúpaður í Hörpu Tannhjálp sinnir nauðsynlegri neyðarþjónustu tannlækna Nú er rétti tíminn til að huga að útisvæðinu „Sumarið byrjar hjá okkur“ Eva Laufey segir Hagkaup tilbúið í björtustu dagana Gerðu pallinn og svalirnar að uppáhaldsstað sumarsins! Hvernig tannlæknar leysa algeng útlitsvandamál Kaldir pottar eru orðnir hluti af daglegri rútínu margra landsmanna Nespresso 40 ára: Afmælishátíð með vinningum að verðmæti milljón króna Golfvöllurinn í Eyjum tilnefndur sem sá besti í Evrópu Opnir fræðslufundir fyrir almenning um lífeyrismál Situr þú eins og rækja? Góð líkamsstaða byrjar á réttum stól Skóspark og Krakkadagar hjá Icewear: Gengið inn í vorið E.T. sýnd við lifandi undirleik Sinfó í Hörpu Infraklefar og sánur eru heilsutrendið sem allir eru að tala um Hugarafl er staður þar sem karlmenn fella niður grímuna Tryggðu þér sæti í sólinni áður en sumarið fyllist Pungrakvélin hefur slegið í gegn hjá Chad Grooming Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands Íslenskt heiðalamb frá Kjarnafæði í nýjum páskaumbúðum Galdurinn á bak við hinn fullkomna ljóma Sjá meira