Nýliðar Fjölnis semja við 192 sentímetra landsliðskonu frá Litháen Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. maí 2020 16:41 Lina Pikciute birti þessa mynd af sér á fésbókinni eftir að hún varð Þýskalandsmeistari með Keltern tímabilið 2017-18. Mynd/Fésbókin
Nýliðar Fjölnis í Domino´s deild kvenna í körfubolta fengu góðan liðstyrk í dag þegar félagið samdi við litháensku landsliðskonuna Linu Pikciute. Fjölnir ætlar sér að festa sig í sessi í Dominos deild kvenna á næsta tímabili og gott skref í þá átt var að fá til sín Lina Pikciute sem hefur flotta ferilsskrá. Lina Pikciute er líka 192 sentímetrar á hæð og mun muna mikið um það í baráttunni undir körfunum næsta vetur. Lina Pikciute verður þrítug á þessu ári og hefur mikla reynslu frá Evrópu þar sem hún hefur spilað í efstu deild á Spáni og Þýskalandi auk þess að spila í Euroleague og Euro cup. Lina hefur verið fastur leikmaður í litháíska landsliðinu í mörg ár ásamt því að spila í bestu deildum í Evrópu. Lina er líka sigursæll leikmaður því hún hefur fimm sinnum orðið litháenskur meistari og unnið landsliðstitilinn bæði í Svíþjóð 2015 og í Þýskalandi 2018. Lina Pikciute lék með Leganes á Spáni á þessu tímabili í spænsku b-deildinni þar sem hún var með 8,7 stig og 6,9 fráköst að meðaltali á 23,2 mínútum í leik. Fjölnisliðið vann sér sæti í Domino´s deild kvenna í vetur og hafði áður tilkynnt að liðið ætlar að halda bandaríska leikmanni sínum frá því í b-deildinni. Ariel Hearn var með 24,3 stig, 12,7 fráköst og 7,3 stoðsendingar í leik með Fjölni á tímabilinu og mætir aftur næsta vetur.
Dominos-deild kvenna Fjölnir Mest lesið „Allir í kringum íþróttir ættu að hafa áhyggjur“ Sport Messi laumaðist inn á leikvang Barcelona og lét engan vita Fótbolti Gummi Ben fékk hláturskast ársins Fótbolti Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Íslenski boltinn Er ekki viss um að liðin á suðvesturhorninu væru til í þetta Sport Þurfa að borga háar fjárhæðir fyrir bílastæði á HM Fótbolti María valin nýliði ársins: Eins óútreiknanleg og Eyjafjallajökull Fótbolti Missa af landsleik af því að þeir eru ekki bólusettir Fótbolti „Menn beita öllum brögðum“ Enski boltinn Stólarnir gáfust ekki upp og gengu frá Manchester Körfubolti Fleiri fréttir Stólarnir gáfust ekki upp og gengu frá Manchester Tryggvi fagnaði fjórða Evrópusigrinum í röð Stjórinn sem skipti Doncic frá Dallas missir starfið Bæði Florída-liðin unnu á flautukörfu í nótt og svona fóru þau að því Lofuðu Óla Óla og fengu hann svo í beina útsendingu úr búningsklefanum Slakur undirbúningur hjá Ármanni: „Þær virðast koma bara alveg af fjöllum“ Blikarnir taplausir á toppnum Sonur Dominique Wilkins með vindmyllutroðsluna í blóðinu Kári og Kristó eru skemmtilegasta kombóið í þessari deild NBA-goðsögnin Lenny Wilkens látin „Er ekki alveg viss um hvar hann hefur lært körfubolta“ Maddie Sutton í sögubækurnar í fámennum hóp Martin stigahæstur með tvöfalda tvennu Keflvíkingar bæta framherja frá Slóveníu í hópinn NBA vill koma deild í Evrópu á koppinn Leikmaður ÍA búinn á því í upphitun Uppgjör: Grindavík - Keflavík 104-92 | Ekkert stöðvar Grindvíkinga Óli Óla: Við getum alveg eins hrokkið upp af á morgun Uppgjörið: Ármann - Tindastóll 77-110 | Tindastóll of stór biti fyrir Ármann Varð sá hávaxnasti í sögunni Tvítug körfuboltakona með tímamótafjárfestingu Ingibergur hættir sem formaður: „Miklar tilfinningar innra með mér“ „Verður kannski mest krefjandi fyrir börnin mín“ „Þarf ekki að láta aðra segja mér hvort að liðið sé nógu gott“ Uppgjörið: Njarðvík - Stjarnan 101-105 | Langþráður sigur Íslandsmeistarana ÍA - Valur 81-83 | Grátlegt tveggja stiga tap á nýjum heimavelli Þór Þ. - ÍR 100 - 98 | Fyrsta sigrinum fagnað í Þorlákshöfn Uppgjörið: Álftanes - KR 108-89 | Stórsigur gegn vængbrotnu liði Banninu aflétt og Bretland mun mæta Íslandi Sá húsið sitt brenna til kaldra kola Sjá meira