Aðventan er tími svefnleysis og kvíða hjá mörgum Florealis kynnir 10. desember 2019 13:30 Sandra Mjöll Jónsdóttir, doktor í líf- og læknavísindum og vörustjóri hjá Florealis. Leifur Wilberg
Íslenska lyfjafyrirtækið Florealis hefur sett á markað lyfið Sefitude við vægum kvíða og svefnvandamálum. Sefitude er eina kvíða og svefnlyfið á Íslandi sem fæst án lyfseðils. ,,Sefitude hefur verið mjög vel tekið af Íslendingum. Lyfið kom á markað í fyrra og seldist fljótlega upp. Við vitum að stór hluti Íslendinga tekur lyfseðilskyld lyf við kvíða og svefnvandamálum á hverjum degi en við vitum líka að það eru fjölmargir að fást sjálfir við slík vandamál án meðhöndlunar” segir Sandra Mjöll Jónsdóttir, doktor í líf- og læknavísindum og vörustjóri hjá Florealis. ,,Við erum ánægð með að hafa aukið fjölbreyttni úrræða og að geta boðið fólki viðurkennda lausn til að takast á við sín vandamál.”Aðventan oft annasamur tímiSandra segir Sefitude geta gagnast mörgum við að ná aftur stjórn á svefninum. ,,Það er sterk tenging á milli svefns og andlegrar heilsu. Það sést sérstaklega vel á álagstímum eins og aðventunni og það er sorglegt hve margir upplifa andlega vanlíðan á þessum árstíma. Stanslaust áreiti allt í kringum okkur og skilaboð um að við þurfum að gera meira getur skapað innri togstreitu hjá fólki. Okkur finnst við þurfa að uppfylla ýmsar væntingar sem eru oft á tíðum óraunhæfar. Aðventan hjá mörgum einkennist einmitt af miklu áreiti og væntingum og það er því ekki skrýtið að kvíði og svefnvandamál fari að gera vart við sig á þessum árstíma. Eitt það mikilvægasta sem við getum gert til að takast á við þetta álag er að stilla væntingum í hóf og passa uppá svefninn.” segir Sandra og bætir við að það eigi jafnt við fullorðna og börn. Mikilvægt sé að huga að svefnvenjum barna og ungmenna á þessum árstíma, takmarka skjátíma og snúa ekki sólarhringnum við þó svo að það sé jólafrí. Til að bæta svefngæði og draga úr kvíðaSefitude er unnið úr jurtinni garðabrúðu (Valeriana) og er ætlað til að meðhöndla væg einkenni kvíða og svefnvanda á borð við svefnleysi. Úrræði til að meðhöndla slík vandamál á byrjunarstigi hefur skort á Íslandi og lyfseðilskyldum lyfjum oft beitt áður en aðrar leiðir hafa verið reyndar. Það er mikilvægt að geta gripið inní áður en vandamálið verður of stórt. Sandra segist mjög ánægð með að geta boðið Íslendingum uppá þennan valmöguleika, en lyfið er fáanlegt í öllum apótekum landsins án lyfseðils. ,,Sefitude er tekið inn að kvöldi og hjálpar viðkomandi að róast fyrir svefn og að festa svefn. Lyfið stuðlar að því að fólk haldist sofandi og vakni síður upp um miðja nótt. Fólk vaknar síðan ekki sljóvgað daginn eftir, en lyfið er hvorki sljóvgandi né ávanabindandi. Slíkt er forsenda þess að fá að vera í lausasölu. Þá hefur Sefitude enn fremur verið prófað í klínískum rannsóknum bæði á fullorðnum og ungmennum (12-18 ára), og má því nota frá 12 ára aldri.”Gagnlegar upplýsingarNotkun við vægum kvíða: 1 tafla 1-3 sinnum á dag fyrir fullorðna og 1 tafla 1-2 á dag fyrir ungmenni 12-18 ára. Notkun við svefntruflunum: 1 tafla ½-1 klst fyrir svefn fyrir fullorðna og ungmenni eldri en 12 ára. Ekki ráðlagt börnum yngri en 12 ára, þunguðum konum eða konum með barn á brjósti. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun. Leitið læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkun. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is Þessi kynning er unnin í samstarfi við Florealis.
Heilsa Mest lesið Kókaínklásúla í kaupmálanum tryggir Keith rúman milljarð Lífið Sindri og Albert selja Skerjafjarðarslotið Lífið Hvenær verður afbrýðisemi út í fortíð maka að þráhyggju? Lífið „Ég er mjög hrædd um að einhver ræni mér“ Lífið „Kunna ekki að reikna, kunna svo ekki að skammast sín“ Menning Skrýtið næturlíf og ævintýri sem fylgja partýjunum Lífið Veisla fyrir augu og eyru Gagnrýni Í miðjum tökum kom í ljós að Ragnhildur og Halldór voru náskyld Lífið Íslensk fyrirsæta slær í gegn á tískupöllum Mílanó Tíska og hönnun Hefðbundið ítalskt „Pesto Alla Genovese“ Lífið Fleiri fréttir Hug-A-Lums þyngdarbangsar sem allir elska The Ultimate Eagles halda tónleika í Hörpu Ætla að syngja sig hás og dansa við Komdu um jólin Stjörnurnar flyktust á frumsýningu einnar mest spennandi bíómyndar ársins Serumið sem snýr öldrun húðarinnar við Heilbrigður hársvörður er lykillinn að fallegu hári Ógleymanlegar skíðaferðir með Bændaferðum Fékk sterkari bein án lyfja Sjö rétta líbönsk veisla sem þú mátt alls ekki missa af! Hlaupaæfing með Rakel Maríu á Heilsudögum í Hagkaup tókst afar vel Uppselt, uppselt og aukatónleikum bætt við Sumar á Sýrlandi Skapaðu góðar minningar með Heimsferðum Þróaði vörur sem breyttu hans eigin lífi Lærðu að tala við gervigreindina og fá svör sem virka! Þykkari augnhár og augabrúnir – vísindin á bak við UKLASH Opnunarhátíð í Ríteil Kids „við erum að drukkna í fötum“ Hætti að þurfa að ryksuga upp hárin eftir hverja sturtu Ný svefnlína sem hjálpar þér að sofna, sofa og vakna hress! Með stimpil upp á ekta spænska matarmenningu Með stimpil upp á ekta spænska matarmenningu Sjá meira