Nýir sjúkrabílar í Dúbæ eru Nissan GT-R og C7 Corvette Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 11. október 2019 14:00 Corvette C7 Grand Sport og Nissan GT-R ættu að vera býsna fljótir á staðinn ef eitthvað kemur upp.
Sennilega er að finna í Dúbæ bókstaflega neyðarþjónustuna með besta viðbragðið. Það er erfitt að fara hraðar í götubíl frá kyrrstöðu upp í 100 km/klst en í Nissan GT-R. Viðbragðsaðilar eru almennt frekar fljótir í förum í Dúbæ. Lögreglubílaflotinn vakti athygli fyrir nokkru en hann státar af Bugatti Veyron bifreiðum, fleiri en einni, Lamborghini Aventadors, Aston Martin One-77 og Porsche 918 Spyder til að nefna þá helstu.Corvette-an tekur sig vel út með merkingum viðbragðsaðila.Sá floti er því líklegur til að hafa haft áhrif á val á sjúkrabílum, þegar kom að því að uppfæra þann flota. Vélin í Corvette C7 Grand Sport er 6,2 lítra V8 og skilar 460 hestöflum. Nissan GT-R gerir raunar enn betur, vélin í honum er 3,8 lítra V6 og skilar 550 hestöflum. Nissan-inn getur farið frá kyrrstöðu upp í 100 km/klst á undir þremur sekúndum. Corvette-an er litlu hægari en hún er um fjórar sekúndur í 100 km/klst.
Bílar Mest lesið Ungur leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni Innlent Barnið lét foreldra sína vita af brotinu Innlent Stefán Kristjánsson er látinn Innlent Vonda veðrið færist í borgina og á Suðurland Veður „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Innlent „Stórfurðulegt“ að bjóða foreldrum ekki strax á fund Innlent Litlu mátti muna þegar ferðamaður svínaði fyrir hjón á Hellu Innlent Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Erlent Hjólhýsi hafa „sprungið“ á Holtavörðuheiðinni Innlent Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Innlent